Summertime

Sumarið er eiginlega að bresta á hérna í Danmörku enda kom sumartíminn í gær, heiðskýrt og sól en hitamistur og örlítið svöl golan. Þvotturinn þornar um leið á snúrunum og dásamlegt að hafa opið út til að viðra svolítið. Það besta við þennan tíma er að geitungarnir eru ekki vaknaðir ennþá, ég held nefnilega að þeir verði hrikaleg plága í sumar þar sem veturinn var frekar mildur við þá blessaða. Þá er hreinlega málið að dreifa heimatilbúnu geitungagildrunum sem víðast... þessum þar sem maður sker í sundur plastflösku og snýr opinu á hvolf ofaní flöskuna og setur eitthvað sykurgums í botninn sem þeir elska.
Við Danni fórum út í búð snemma á laugardagsmorgun (stórmarkaðurinn opnar kl 8 á laugardagsmorgnum fyrir morgunhana eins og okkur) og þar var þvílíkt úrval af afskornum blómum, á 15kr vöndurinn (180isk). Ég gjörsamlega elska að fylla húsið af svona blómum og ekki verra að geta blandað saman eftir eigin óskum, jafnvel þó þau endist ekki nema í nokkra daga.
Núna ætla ég að renna eftir stráknum, það er húsregla hér að þegar veðrið er nógu gott til að Danni geti setið í stólnum sínum á hjólinu á heimleiðinni, þá er enginn afsökun fyrir því að nota ekki hjólið þegar við sækjum hann til dagmömmunnar. Bensínverðið er reyndar búið að rokka þvílíkt mikið síðustu daga eins og alltaf, um heilar 17isk bara í dag.

Mánudagur 26. mars 2007 kl. 12:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 2

skattmann

Far Vel Skattframtal!
hvernig fara menn að því að gera þetta svona leiðinlegt.. mér finnst allavega að maður ætti að fá stóran gulan broskall þegar maður er búinn!




Þriðjudagur 20. mars 2007 kl. 23:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 5

Sáttmáli um framtíð Íslands

gratt-graent.jpg

1. Við höfum kjark til að byggja upp fjölbreytt og lifandi samfélag á Íslandi þar sem hugvit og sköpunargleði einstaklinga fær að njóta sín þeim sjálfum og öðrum til heilla.

2. Við sýnum komandi kynslóðum virðingu með því að láta lögfesta áætlanir um náttúruvernd áður en nokkuð frekar er aðhafst í orkuvinnslu.

3. Við öxlum ábyrgð á tímum viðsjárverðra loftslagsbreytinga í heiminum með því að fylgja alþjóðlegum skuldbindingum um losun gróðurhúsalofttegunda.


Það sem fólki, þá sérstaklega búsettu á landsbyggðinni, vantar í staðinn eru hugmyndir eða lausnir sem það getur unnið úr. Flestir eru að bíða eftir pakkalausn með slaufu eins og álverin hafa verið sett fram sem en þegar pakkinn er opnaður er hann ekki mjög kræsilegur.
Mér finnst ég samt vera umflotin hugmyndum, og hef verið að melta það með mér hvort ég eigi að búa til hugmyndavef þar sem fólk getur skráð inn hugmyndir sem það hefur fengið en hefur ekki áhuga eða kost á að framkvæma.
Pæling.

En byrjið allavega á því að lesa og undirrita sáttmálann lesendur góðir þar sem ég er ódugleg við að senda út póst til að minna á það.

Sunnudagur 18. mars 2007 kl. 20:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 3

summer of "07

Um þessar mundir erum við að skipuleggja sumarið. Þetta verður reyndar óvenjulega lítið frí þar sem skólarnir okkar eru ekki búnir fyrr en undir lok júní. Það setur eitthvað strik í reikninginn fyrir 10 ára stúdentsafmælið hans Óla sem verður 16. júní. Mikil gleði þar á ferð sem ég held að hann vilji ekki missa af.
Skólinn byrjar svo aftur um miðjan ágúst þannig að þetta eru um 6 vikur sem við höfum að spila úr, sem er ekki mikill tími í að rétta fjárhaginn eins og íslenskir námsmenn eru vanir að gera, þannig að við tókum þá diplómatísku ákvörðun að vera ekkert að rembast við það, heldur njóta þessa eina sumars sem við erum hérna, því eftir næsta skólaár stefnum við á flutning í höfuðborg norðursins. Já tíminn flýgur.

En aftur að sumarfríinu. Þetta skipulag snýst aðallega um það hversu marga "seasonpassa" á að versla. Hérna í nágrenninu eru endalaus tivoli, dýragarðar og skemmtigarðar, til dæmis Tivoli Friheden hérna í Árósum, rétt hjá hinum sívinsæla Bambagarði. Legoland er í um klst akstri niður Jótland og Djurs Sommerland er aðeins norðan við okkur, auk Fårup Sommerland sem er alveg nyrst, upp við Skagen. Reyndar er það þannig að með því að kaupa seasonpassa í Djurs þá fær maður miðann inn í Legoland á hálfvirði og ég hugsa að við gerum það þannig, enda er kannski ekki útlit fyrir að maður fari oftar en 3x í Legoland yfir sumarið. Í Djurs er hins vegar stór sundlaugargarður sem ég sé fyrir mér að sonurinn hafi mjööög gaman af, auk þess sem maður getur kannski náð að minnka glæruna yfir kroppnum. Ef guð lofar.

Við erum líka að vinna í því að draga sem flesta hingað út. Baddý systir kemur vonandi í maí á meðan við erum í prófaverkefnum og Lilja systir Óla með sína fjölskyldu í júlí. Svo var Óli að reyna að plata nafna sinn Magnússon til að koma líka í sumar og aldrei að vita nema það takist.

Semsagt, skemmtileg sumar framundan, ennþá nokkrar vikur lausar fyrir þá sem vilja kíkja í heimsókn, en við þurfum víst aðeins að bíða ennþá eftir sumrinu því framundan er næturfrost:

ojj

Sunnudagur 18. mars 2007 kl. 08:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 3

"The Great Global Warming Swindle"

Við horfðum á myndina "The Great Global Warming Swindle" á google video í gær og ég er nú svolítið eftir mig, verð ég að segja, þar sem Inconvenient Truth er ennþá í fersku minni.
Ég hvet reyndar alla til að sjá þessa mynd, sem var frumsýnd fyrir stuttu (8. mars 2007) á BBC, til að fá aðra hlið á málum hnattrænnar hlýnunar.
Í þessari mynd eru nokkrir vísindamenn að segja frá því, í stuttu máli, að þeirra niðurstöður bendi til þess að maðurinn eigi ekki sök á hlýnun loftlagsins með gegndarlausum koltvísýringsútblæstri, heldur stjórni sólin og skýjafar í lofthjúpnum þessu alfarið. Mannanna CO2 útblástur sé bara tittlingaskítur miðað við kraft sólarinnar og í raun og veru sé sú tenging milli hlýnunar andrúmslofts og magns CO2 tilkomið vegna þess að CO2 uppgufun í náttúrunni aukist þegar yfirborð jarðar og andrúmsloftið hitnar, en ekki öfugt.


Þeir hrekja grundvallartilgátur Al Gores svo tekið er eftir, og koma með rök fyrir því að gróðurhúsavandinn sé bara enn ein leiðin til að stýra ríkisfjármálum og halda almenningi nógu skelfdum til þess að gúddera bruðlið. Þeir segja þessa stefnu halda heilli heimsálfu, Afríku, í gíslingu þar sem Afríkubúar fái ekki leyfi til að nota sína náttúrulegu orkugjafa, kol og olíu, til að lýsa húsin sín og elda mat, heldur er gert að nota rándýra orkugjafa, sólarrafhlöður, sem við hér á vesturlöndum tímum ekki einusinni að nota.


Jahá.


Þegar ég byrjaði að horfa á myndina var ég ákaflega skeptísk því maður hefur það á tilfinningunni að þeir sem gagnrýni loftlagsbreytingar af mannavöldum séu á bandi stórfyrirtækja sem kaupi þær niðurstöður sem þeim hentar, en þessir vísindamenn sverja fyrir það allir sem einn að hafa nokkuð að gera með slíkt. Hvort maður trúir því er svo annað mál. En hverju og hverjum á maður þá að trúa? Er það þá bara lögmálið "allt er best í hófi" sem gildir?


Og ef þetta er svona, þá er allt tal um mengunarkvóta afskaplega hlægilegt. Einnig það að Íslendingar ætli sér að "bjarga heiminum" með því að nota hreina orku til að knýja álver. Eina spurningin er hvort maður vilji mengunina í bakgarðinum sínum eða einhvers annars.


Að síðustu er líka þessi vantrú á vísindin, sem okkar helsta tæki til að rannsaka heiminn ef við lítum ekki á þau gagnrýnum augum.
Vísindi, peningar og stjórnmál er ekki góður kokteill.

Mánudagur 12. mars 2007 kl. 20:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 2

hið dásamlega danska sjónvarpsefni

Ég er búin að sitja fyrir framan skjáinn í kvöld svona samhliða netvafri. Fyrst var það skautadanskeppni á ítölsku stöðinni Rai Uno þar sem legghlífar og eightís músík voru í fyrirrúmi. Núna er það leikstjórinn David Lynch sem talar um hugleiðslu við ákaflega jarðbundinn danskan sjónvarpsmann í viðtalsþætti á DR1. Daninn er á svipin eins og hann hafi barasta aldrei heyrt annað eins.
Skemmtilegt já.
Svona álíka skemmtilegt og reikningurinn sem kom frá Danmarks Radio um daginn um afnotagjöldin. pjúff* Hann alveg álíka feitur og RÚVarinn en þeir eru líka að byggja sér hús sem fór oggólítið fram úr áætlun... einhverjar 130 milljónir evra eða svo.

Sunnudagur 11. mars 2007 kl. 00:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 0

x2007

Maður þarf ekki að vera langt í burtu til að sjá að það eru kosningar í nánd á Íslandi. Það verður áhugavert og líka mjög auðvelt að fylgjast með baráttunni úr fjarlægð því að hún fer að miklu leyti fram á netinu. Í fyrsta skipti núna er bloggið orðið áhrifamikið tól í íslenskum stjórnmálum og eiginlega undarlegt að það hafi ekki gerst fyrr, ég allavega kvartaði yfir því í apríl 2003.

Hinn almenni bloggari, sem ættu að vera allir sem sitja kvartandi í eldhúskróknum heima hjá sér, getur líka haft töluverð áhrif. Það gerðist í Svíþjóð á síðasta ári, þegar nýkjörin sænska ríkisstjórnin lenti í mikilli krísu eftir smá rannsóknarvinnu eins bloggara, þannig að viðskiptaráðherrann sagði af sér átta dögum eftir að hún tók við og menningarmálaráðherrann var undir smásjánni í nokkrar vikur þar á eftir.

Annars hef ég ekki glóru um það hvað ég á að kjósa. Ég var lengi skráð í sjálfstæðisflokkinn, eða eftir að ég var á lista xD og ÓHÁÐRA fyrir norðan í sveitastjórnarkosningunum 1997. Ég veit eiginlega ekki af hverju ég samþykkti að vera þar, og tók í raun engan þátt í því þar sem ég var í prófum í MA á þeim tíma, en einhverra hluta vegna fór ég að fá fréttabréf og boðskort í prófkjör. Eftir að ég las Draumalandið ákvað ég að ég skyldi kjósa VG í næstu kosningum, og hringdi upp í háaleiti og afþakkaði pent að nafn mitt og adressa væri á lista hjá þeim, enda hefði ég aldrei skráð mig sjálf í flokkinn. Hins vegar tek ég eftir því núna að langflestir í fréttaveitunni minni er Samfylkingarfólk en sjálf bíð ég spennt eftir því hvað "Íslandsflokkurinn" kemur til með að færa á næstu dögum. Mætti segja að ég sé gjörsamlega áttavillt, og er örugglega ekki ein um.

Eiginlega er maður orðinn dauðleiður á þessum flokkum og öllu þessu karpi og tvískinnungshætti og vildi óska að fólk færi að koma sér að kjarnanum.

Föstudagur 09. mars 2007 kl. 21:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 1

Lára afmælisstelpa

Í dag á heiðurskonan Lára Stefánsdóttir afmæli, á morgun verður stórveisla haldin henni til heiðurs og þar sem ég sé mér ekki fært að mæta þá ber ég henni kærar kveðjur og treysti því að aðrir pjúsarar haldi uppi fögnuði.

Föstudagur 09. mars 2007 kl. 21:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem fólk / 0

* nýtt útlit *

Síðustu tvo daga hef ég aðeins verið að breyta útlitinu og uppsetningunni á blogginu. Ég er sífellt að reyna að finna betri leiðir til að setja upp bloggið en einhvernvegin fær maður alltaf leið á því að horfa á það sama. Ég er ágætlega sátt við þetta, enn sem komið er.
Það er líka fínt að vinna með bloggkerfið Movable Type. Eftir að ég uppfærði finnst mér það ganga hraðar og eftir að hafa horft yfir öxlina á Óla með sitt Wordpress þá er ég ennþá ánægðari með mitt MT.
Það eru örugglega einhverjir hnökrar á þessu, þannig að ég ætla að kíkja í Windows tölvurnar í skólanum á morgun.
En ef það er einhver MT notandi þarna úti sem vill fá template skrárnar mínar þá væri ég glöð að deila þeim, með smávegis breytingum auðvitað. Endilega hafa bara samband.

Miðvikudagur 07. mars 2007 kl. 22:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / netið / 1

Storytelling / Listin að segja sögur

Bókabúðin í skólanum mínum er mjög fín, eiginlega ein af bestu upplýsingatækni-bókabúðunum á svæðinu. Eins og ég er mikill sökker fyrir bókabúðum svona almennt þá er ekki verra að þarna fást pennar í öllum sverleikum (Mmmm), og súkkulaði (MMmmm) við kassann. Mér finnst ekki verra að geta beðið þar inni og flett á meðan ég bíð eftir farinu heim.
Um daginn var haldin plakata samkeppni í skólanum til að auglýsa fyrirlestur og í verðlaun var inneign í bókabúðinni góðu. Ég sendi inn plakat og það var (að sjálfsögðu..) valið. Fyrir inneignina keypti ég bók sem heitir Storytelling, Branding in practice. Hún fjallar um það hvernig fyrirtæki og vörumerki geta sagt sögur sem auka gildi þeirra fyrir viðskiptavinum og starfsmönnum, mjög áhugaverð bók.
Svo skemmtilega vildi til að fyrirlesturinn sem posterið var fyrir, fjallaði líka um Storytelling, en ég missti af honum vegna veikinda. Vonandi bætir bókin það þá eitthvað upp.

Miðvikudagur 07. mars 2007 kl. 22:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur / hönnun / 1

orðalisti fyrir leturhönnun

Ég fæ stundum undarlega tölvupósta. Ég fæ reyndar daglega stórkostlega undarlega tölvupósta en ruslpóstsían hjálpar mér að halda sæmilegri geðheilsu við að skoða póstinn.


Um daginn skrifaði mér ísraelskur hönnunarnemi sem var að skrifa ritgerð um íslenska hönnun (i wonder why!!) og bað um mitt álit á því hvað væru séreinkenni íslenskrar grafískrar hönnunar.
Ég sendi honum einhverja pælingu sem ég skrifaði þegar langt var liðið á nóttina og ég hef ekki ennþá þorað að kíkja á hvað ég sendi honum eiginlega. En hann þakkaði fyrir og sagði að þetta hefði hjálpað sér mikið.
hahaha!


Núna fyrir nokkrum dögum fékk ég svo póst frá grafískum hönnuði frá Alaska, sem er að útbúa orðalista fyrir leturhönnuði, þannig að hann safnar ýmsum orðum úr allskonar tungumálum, sem er síðan notaður til að sjá hvernig letrið sem er hannað kemur út í allskonar orðum á tungumálum sem hönnuðurinn skilur ekki.


Reglan er sú að fyrir hvern staf í stafrófinu á að finna orð sem er með hann sem upphafsstaf, stafinn tvisvar inni í orðinu og enda á stafnum. Auk þess á orðið að birtast í þremur mismunandi formum í listanum.


Hann semsagt bað mig um að gera þennan lista yfir íslensk orð, sem mér finnst mjög skemmtilegt verkefni. Það var augljóslega ekkert mál að finna orð með upphafsstafinn en svolítið erfiðara að finna hin orðin, sérstaklega með tveimur sérhljóðum, (ég fann reyndar orðið "ugluungi" þegar ég var að fara að sofa í gær).
Listinn minn er hérna og ef þið hafið hugmyndir um breytingar eða viðbætur, eða athugasemdir, þá endilega látið mig vita.

Föstudagur 02. mars 2007 kl. 12:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 3