tómatsúpa með beikoni

Hún er ömurleg, pestin sem er búin að hrjá mig síðustu dag og ekkert lát er á. Þegar þannig er statt er ekkert betra í kvöldmatinn en góð, kraftmikil og heit súpa. Með nokkrar uppskriftir við hlið mér og afganga úr ísskápnum varð þessi til:


Tómat og beikonsúpa

½ bréf beikon
5-6 hvítlauksgeirar
4 laukar
3-4 gulrætur
1 dós niðursaxaðir tómatar
½ lítri kjúklingasoð
1 dl rjómi
krydd: basilika, herbs de provance, oregano, salt og pipar

Byrjaði á því að saxa allt grænmeti niður, steikja beikonið í potti, taka það svo uppúr og mýkja laukinn í beikonfitunni, bæta svo gulrótum við, svo úr tómatdósinni og láta það malla vel saman. Búa til soð úr kjúklingateningum og þegar suðan er komin upp að bæta því útá. Krydda og láta malla í ca klukkutíma. Þegar 10 min eru eftir má beikonið fara útí aftur og svo rjóminn.
Borið fram með brauðbollum og nóg af vatni (helst ísköldu íslensku kranavatni).

Mánudagur 12. febrúar 2007 kl. 19:31
Flokkað sem matur. Þar eru 43 færslur.

/ Álit

gunna:

Mmmmm.

12.02.07 21:11


dagný:

já, takk, hún smakkaðist vel :)

12.02.07 21:27