sambúðarafmæli
Það er ýmislegt sem getur gerst á einum áratug. 10 árum. Það er langur tími en er samt svo fljótur að líða. Í dag eru nefnilega 10 ár síðan við byrjuðum saman og mér finnst eins og það hafi gerst í gær.
Árið 1997:
- Clinton hóf seinna kjörtímabil sitt sem forseti Bandaríkjanna og Tony Blair tók við embætti í Bretlandi.
- OK Computer með Radiohead kom út
- Fyrsta Harry Potter bókin kom út
- Hönnuðurinn Gianni Versace er skotinn til bana
- Microsoft keypti $150 milljón hluti í Apple
- Southpark hefur göngu sína í bandarísku sjónvarpi
- Díana prinsessa lést í bílslysi
- Móðir Teresa lést
- Google lénið var skráð
- Orðið "weblog" verður til
- Yfirvöld í Hong Kong slátruðu öllum kjúklingum á svæðinu (1.25 milljón) til að hefta útbreiðu inflúensu sem hafði komið upp.
- Toyota Prius var fyrst sýndur opinberlega, fyrsti smábíllinn knúinn vetni, sem yrði framleiddur árið 2000.
Af því við erum svo ung í anda þá ætlum við ekki að fara út að borða eða í leikhús, eða elda steik með dýru rauðvíni, heldur ætlum við bara að panta pizzu :)
Flokkað sem fólk. Þar eru 14 færslur. / heimilið. Þar eru 57 færslur.
/ Álit
Til hamingju með áfangann þið tvö!
takk fyrir :)
Til lukku systir og mágur!! :)
Verði ykkur að góðu með pizzuna...
mamma:
Til hamingju með daginn.
Rosalega eru 10 ár búin að vera fljót að líða.
Já rosalega líða 10 ár hratt.
Innilega til hamingju með daginn.
Kærar þakkir :)
mundi:
...þetta er góð byrjun hjá ykkur. Innilega til hamingju. ;)
til hamingju elskurnar:)



RSS veita