Hönnunarhræðsla

Getur verið að það sé ákveðin hönnunarhræðsla á Íslandi?
Ég segi þetta af því ég var að hlusta á kvöldfréttirnar á ruv.is um helgina, þar sem var verið að sýna frá ræðu Steingríms J á landsþingi VG. Þar var hann að tala um hvað flokkurinn væri að vaxa og það væri út af því hvað málefnin væru sterk og þar frameftir.. og þá sagði hann; "... við þurfum enga hönnun" og var líklega að vísa í það að það er engin auglýsingastofa í vinnu við það að útbúa "feik glansmynd", en orðalagið stuðaði mig samt.
Það fyrsta sem kom í huga mér var setning sem oft hefur verið kveðin : "You cannot not communicate" því allt sem þú gerir mun búa til ákveðna mynd í huga fólks hvort sem þér líkar betur eða verr, og er þá betra að nota happa/glappa aðferðina heldur en að byggja á þeirri þekkingu sem er til hjá fagfólki?


Verslunin Bónus er með svipaða stefnu, því allt sem kemur frá þeim hefur hrásoðið útlit og ódýran blæ, sem er hluti af þeirra strategíu, en þeir eru ekki að borga neitt minna fyrir það heldur en ef þetta væri sæmilega smekklegt. Allt spurning um ákvörðun og stefnu.


Annað atriði sem leiddi til þessarar hönnunarhræðslupælingar var frétt á mbl.is um verkefni í Listaháskólanum sem nefnist Borðið: Stefnumót hönnuða við bændasamfélagið. Frábært verkefni þar sem nýsköpun og frumkvöðlahugsun fær að blómstra. Hins vegar eru það bloggin sem hafa verið skrifuð um þessa frétt sem mér finnst ekki uppörvandi, (reyndar mikið til skot bændasamtökin vegna klámráðstefnufréttarinnar sem er búin að trylla landann uppá síðkastið og nóg búið að ræða) að virðing fyrir bændastéttinni sé ekki í hávegum höfð.
Kannski er þetta út af því að hönnun er ennþá ný af nálinni á landinu og þjóðarsálin þekkir hana ekki, og setur þar með í sama flokk og listræna gjörninga eða Völu Matt?
Þá er bara vonandi að hönnunarvettvangur geti orðinn sterkt afl sem fræðir landann um hversu mikils virði hönnun getur orðið hér á landi. Ein forsenda fyrir því að nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi geti átt sér stað er sú að samfélagið sé laust við fordóma. Svona nokkurn vegin allavega.


Þetta gefur mér reyndar hugmynd um annað blogg um hugmyndaauðgi vs frumkvöðlastarfsemi (Creativity vs Innovation) en það verður að bíða betri tíma.


Mánudagur 26. febrúar 2007 kl. 23:36
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.