Höfðingleg gjöf Sparisjóðsins

Ég held að Sparisjóður Svarfdæla hafi skorað mörg prik hjá landsmönnum í dag, fyrir hönd allra Sparisjóða á landinu, með því að kynna áform um byggingu Menningarhúss á Dalvík á sinn kostnað. Um þessar mundir eru Sparisjóðirnir með mikla auglýsingaherferð þar sem spilað er inn á ádeilu á aðrar bankastofnanir og svona gjörningur er vítamínsprauta inn í þá umræðu.
Húsið held ég að myndi líka sóma sér vel á góðum stað og efla bæði menningarlífið og ferðaþjónustuna.
Þarf varla að taka það fram að Sparisjóður Svarfdæla er okkar viðskiptabanki og bæði mamma mín og tengdamamma vinna þar.
Prik :)


Þriðjudagur 27. febrúar 2007 kl. 22:08
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

tengdamamma:

Já, við erum sko að springa af monti. Þetta er frábært framlag og ekki að efa að húsið kemur til með að veita okkur öllum menningu og ánægju.

28.02.07 17:10