að verða steikt í hausnum

Netsnúran sem lá yfir stofugólfið að skrifborðinu mínu er farin. Til allrar lukku því það var bara tímaspursmál hvenær einhver hrasaði um gula ferlíkið og kippti tölvunni niður í leiðinni. Núna fara samskipti mín við umheiminn fram í gegnum andrúmsloftið, spurning ef hausinn á mér er mitt á milli tölvunnar og þráðlausa routersins, hvort að ég nái ekki að fylgjast með þræðinum í lost á meðan ég næ í hann.. hann er einmitt sýndur á aftur á morgun. Pæling.
Annars jukum við tenginguna um daginn upp í 4mb/sek og það er nokkuð hressandi. Það hefur hins vegar ekki mikil áhrif á höktið á fréttatímunum því flöskuhálsinn virðist vera á hinum endanum.


Þriðjudagur 06. febrúar 2007 kl. 14:35
Flokkað sem heimilið. Þar eru 57 færslur. / tækni. Þar eru 60 færslur.