túristar í ársbyrjun

danni_kastrup.jpg Þá er jólafríinu og hinum mikla ferðalagi lokið. Við erum komin heim og erum nokkurn vegin búin að jafna okkur á þessu öllu saman, búin að taka upp úr töskunum og þvottavélin snýr sér sem aldrei fyrr.
Þetta ferðalag frá Dalvík til Árósa tók hvorki meira né minna en 15 klukkutíma; frá hálf níu um morguninn til hálf tólf (íslenskum tíma - hálf eitt að dönskum) um kvöld. Það inniheldur tvær ferðir á einkabílum, tvær ferðir með leigubíl, eina rútuferð og tvær flugferðir. Þrátt fyrir það leið dagurinn nokkuð hratt og algjörlega áfallalaust. Það kannski munaði mestu að sonurinn svaf báðar flugferðirnar gjörsamlega af sér, sumum finnst eitthvað sefjandi við flugtak.


Við lentum semsagt rétt fyrir kl 10 að morgni í Reykjavík og áttum næsta flug frá Keflavík kl 15:30. Það gaf okkur tvo tíma til að vera túristar í borg óttans og eftir þá upplifun (miðað við annarsstaðar sem ég hef ferðast; Danmörk, Bretland, Holland, Mexico) þá finnst mér eiginlega nokkuð ótrúlegt að það skuli yfir höfuð einhverjir ferðamenn vilja ferðast hérna.

Danni sofnaði fljótlega eftir flugtak því hann var rifinn upp eldsnemma (hálf átta) um morguninn.
Við lentum á Reykjavíkurflugvelli heil eftir frekar tvísýna lendingu - maður fann greinilega að þetta var frekar manual lending svo mikið rykktist flugvélin til. Flugstöðin er ákaflega sorglegur staður vegna lélegra húsakynna og ekki síst ákaflega lélegra tenginga við aðrar samgönguæðar. Frá flugvellinum þurftum við að taka okkar fimm töskur (75 kíló) og hringja á leigubíl með barnabílstól, hann tókum við yfir á BSÍ þar sem við geymdum töskurnar okkar og fórum svo með bílnum niður í bæ (ætluðum að taka strætó en gáfumst upp á að hugsa um að reyna það) þar sem við kíktum inn á kaffitár í Bankastræti, kjaftfullur staður klukkan tíu á miðvikudagsmorgni.
Þegar við vorum komin með yl í kroppinn af kaffi og kakói ákváðum við að kíkja í dótabúð fyrir ungann okkar en þar sem Leikbær var "að telja" fórum við inn í Mál og menningu og flettum nokkrum bókum. Þaðan fórum við niður í Iðu og gerðum slíkt hið sama ásamt því að ég fór í 10/11 og keypti nokkra pakka af íslenzkum flatkökum til að hafa með - klikkaði hins vegar alveg á lýsinu og suðusúkkulaðinu, skil það ekki ennþá.
Svo ætluðum við að rölta aftur niður á BSÍ og taka flybus klukkan eitt áleiðis til Keflavíkur en sökum kulda hringdum við aftur á bíl og fengum skutl þangað niðureftir.
Frá BSÍ lá leið með hinum túristum með flugrútunni til Keflavíkur og eftir tékk-inn og allt ruglið sem er farið að fylgja því (þessar vökvareglur eru kapítuli útaf fyrir sig, við rétt fengum að smygla svalafernu, sem við fengum í innanlandsfluginu, með okkur) en auðvitað er maður þakklátur fyrir alla öryggisgæslu og allt það.

Flugið var frekar ljúft, Danni sofnaði um leið og vélin var komin í loftið og svaf í sætinu alla leiðina. Óli gluggaði í bók og ég náði að kíkja aðeins á Greys og hlusta á tónlist.
Á Kastrup lentum við um hálf átta að dönskum tíma, sóttum töskurnar og Óli fór svo og sótti bílinn sem er búinn að bíða eftir okkur síðan við fórum.
Við keyrðum af stað áleiðis til Árósa sem er 3 tíma akstur en þar sem við vorum frekar svöng og klukkan að verða margt þá ákváðum við að stoppa fljótlega og fundum Burger King í einu þorpi við þjóðveginn. Það er eitthvað við það að sjá augnaráðið frá dönum þegar maður kemur með 2 ára barn inn á Burger King kl að verða 10 að kvöldi. Heh.
En heim vorum við komin rétt eftir miðnætti, Danni steinsofnaði í bílnum á heimleiðinni líka þannig að hann vaknaði þegar ég var að hátta hann og frekar ringlaður í kollinum og ekkert á leiðinni að fara að sofa. Við mæðginin fórum því bara fram, leyfðum pabba hans að sofa því hann ætlaði í skólann morguninn eftir, og tókum upp úr töskunum og skoðuðum allt gamla dótið síðan í fyrra.

Ljúft ferðalag að baki og yndislegt jólafrí.

Föstudagur 05. janúar 2007 kl. 09:11
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur. / heimilið. Þar eru 57 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 238 færslur. / uppeldi. Þar eru 46 færslur.

/ Álit

baddy systir:

þetta var nú aldeilis ferðalagið! en ég sé að þú ert búin að taka ástfóstri við honum togga mínum;) mér finnst birthday boy rosa flott lag, eitthvað svo sorglegt samt! og svo kemur sexy beast manni alltaf í smá fíling;) njóttu vel.

06.01.07 02:03


Hanna systir:

Það er gott að allt gekk vel. Ég skal alveg trúa því að það sé einmannalegt núna í Denmark eftir svona gott og fjölskyldu-vænt jólafrí!! Það styttist samt alltaf í jólafríið.. og Páskafríið! Kannski einhverjir komi í heimsókn til ykkar þá?? ;)

09.01.07 14:42


Lilja:

Takk fyrir góðar og skemmtilegar samverustundir um jólin. Gott að heyra að ferðin heim gekk vel. Við erum strax farin að kíkja á sumarhús í Danmörku fyrir vorið/sumarið. Heyrumst fljótlega :o)

13.01.07 10:23