strætó- og hjólamenning
Það var sterkur leikur hjá Akureyrarbæ að hafa strætóinn ókeypis. Sparnaðurinn er nær örugglega meiri en kostnaðurinn, fyrir utan að það er miklu skemmtilegra fyrir menningarlífið í bænum að hafa strætóinn fullan af allskonar fólki (líka fólki sem á bíla) heldur en hálftóma eða bara með rónum eins og í borg óttans.
Hérna í Danmörku er verið að tala um að borga fólki (í formi skattaafsláttar) að hjóla í vinnuna, nokkrar krónur per kílómeter. Það bæði myndi létta á umferðinni, minnka mengun og auka heilbrigði fólks. En þó að þetta ætti að vera nóg til að fá menn af stað þá þurfa menn líka einhverja áþreifanlega gulrót. Og skattaafsláttur er svo sannarlega eitthvað til að kveikja í fólki hérna.
Mér skildist að framkvæmdin ætti að vera þannig að atvinnuveitandinn skili inn vottorði um ákveðinn kílómetrafjölda hjá viðkomandi starfsmanni, en það hlýtur samt að vera hægt að fá einhverja græju á hjólið sem nemur kílómetrafjöldann, svona rétt eins og nike og ipod samstarfið, þar sem hlaupaskórnir senda upplýsingarnar um skokkið þitt inn í ipodinn og svo þegar þú tengir hann við tölvuna þína þá sendir hann þær upplýsingar inn á vef skokkhópsins þíns - sem gæti þá verið dreifður um allan heim.
Ég sé fyrir mér að næsta samstarf Apple verði við Gary Fisher. Það kemur ekkert annað til greina, enda langflottasti hjólagaurinn.
Það gæti verið græja sem heitir iFish ;)
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / samfélag. Þar eru 71 færslur. / tækni. Þar eru 60 færslur.

