ísl - dan
Ég er haldin algjöru egósentrísku viðhorfi gagnvart handboltaleiknum, við erum búin að vera undir í leiknum síðan ég byrjaði að horfa á leikinn í seinni hálfleik (eftir að hafa komið drengnum í rúmið) og því meira sem ég sekk mér niður í áhorfið því meira lendum við undir.. fjórum mörkum undir.. og nú þegar ég þoli þetta ekki lengur og fer að dreifa athyglinni þá allt í einu jafna þeir!
Algjörlega egósentrískt eins og ég segi.. en... hvað ef??
- -
10 min síðar: djöööö... hefði ekki átt að horfa á endinn.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
þetta tap er sem sagt allt þér að kenna!!!
ég hugsa reyndar svona líka og svo þegar fer að dala hjá mínum mönnum þá fer ég að sannfæra mig um að ég geti nú örugglega ekki haft alveg svo mikil áhrif að þeir tapi...ég fer samt oftast milliveginn núna, er að skoða á netinu eða lesa í blaði eða gera eitthvað annað með því að horfa svo ég verði ekki algjörlega upptekin af leiknum, svona eins og ef horft er of stíft þá er erfitt að pissa!!! hehe ...það virkaði nú reyndar ekki alveg í dag, djööö klaufaskapur að leyfa þeim að skora!
já það er spurning hvernig ég hefði geta breytt framgangi leiksins með því að skipta yfir á aðra rás eða fara á klósettið...
spurning..

