áramótaheitin

Mér finnst ágætt að strengja áramótaheit svona ein með sjálfri mér. Ég ákveð til dæmis alltaf um hver áramót að vera duglegri að leika mér í grafíkinni, mála meira, vera skipulagðari, hreyfa mig meira, borða minni sykur, eyða meiri tíma með fjölskyldunni jafnframt því að lesa meira, leggja mig betur fram í vinnunni/skólanum, blogga meira og fara fyrr að sofa. Eins og gefur að skilja falla flest þessi atriði út í fyrsta mánuðinum þar sem það kemst ekki allt að í einu, eða komast ekki í gang fyrr en einhverntíman þegar líða tekur á árið og eru þá tekin fyrir til skiptis. Það er kannski bara allt í lagi? Áramótaheit eru kannski meira markmið sem snúast um það að maður vilji bæta sig, heldur en að setja sér reglur í lífinu.


Fimmtudagur 11. janúar 2007 kl. 21:14
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

baddy:

eru reglur ekki bara leiðsögn að settum markmiðum?? eða hvað! ég hef ákveðið að strengja engin formleg áramótaheit en ég lofa sjálfri mér nánast í byrjun hverrar árstíðar að nú skuli ég fara að hreyfa mig og í lok hverrar annar þá lofa ég sjálfri mér að læra jafnt og þétt yfir önnina. þetta tekst nú sjaldnast og nú er t.d búin rúmleg vika af skólanum og ég hef varla komist í að lesa heima...treysti á að það verði einmannalegt í verknáminu svo ég komi einhverju í verk! stundum spái ég í að vera bara ekkert að ákveða neitt svona svo ég verði ekki að svekkja mig ef (þegar) það tekst ekki, en samt ef maður gerir þetta þá er maður búinn að planta litlu fræi og þá er aldrei að vita nema eitthvað gerist einn daginn! þá verður maður sko stoltur...held að mitt helsta vandamál sé frestunarárátta og að það spili stórt hlutverk í þessu öllusaman. vá hvað þetta er mikið bull..enda klukkan orðin nokkuð áliðið og skóli kl 8...*glúpp*

12.01.07 01:57