Uppfærsla í MT 3.34
Ég var að uppfæra Movable Type bloggkerfið upp í nýja útgáfu og það gekk algjörlega snuðrulaust fyrir sig þannig að þið takið sennilega ekki eftir neinu, það væri frekar að Hanna, Þorsteinn, Baddý, Mundi og Svanhildur og Danni (hah, kannski ekki) fái sjokk þegar þau logga sig inn. Eða kannski ekki, þetta er allt voða smooth. Vona ég. Látið mig allavega vita ef það er eitthvað undarlegt á seiði.
að hafa eitthvað fyrir augunum
Stundum get ég ekki byrjað daginn án þess að laga aðeins til í kringum mig. Ef það er kaos á borðinu mínu þá á ég erfitt með að hugsa. Ég þarf eiginlega að rífa mig út úr þessu (ágætt í því sambandi að skoða onmydesk.com) því ef ég held þessu áfram þá geri ég aldrei neitt nema laga til.
Allavega, ég er með ágætis todo lista fyrir daginn en ákvað að byrja á því að finna nýja mynd á desktopið. Það er algjör tímasóun að leita á Google því þar þarf maður að fara í gegnum haug af rusli áður en maður finnur eitthvað gagnlegt. Það sem ég er að leita að er flott grafík eða skýrar myndir, sem veita innblástur.
Það sem ég geri þá er að fara á portalsíður og leita þar að 'desktop' eða 'wallpaper' eða finn aðrar svalar myndir. En auðvitað ætti ég að gera eitthvað sjálf, hef enga afsökun.
En svo rakst ég á: desktopography og þar með er leitinni lokið í bili. Þetta eru myndir úr náttúrunni sem ýmsir grafískir hönnuðir hafa notað sem innblástur og eru búnir að vinna ofaní ýmsa grafík. Náttúruspjöll kannski? Þá vel ég heldur að framkvæma náttúruspjöllin í Photoshop heldur en á landinu sjálfu. Í Photoshop er nefnilega nokkuð sem heitir "Undo".
fyndið
tímaeyðsla
Þetta moggablogg er að verða alveg einstaklega pirrandi. Í staðinn fyrir að eyða dýrmætum tíma núna eftir landsleikinn í að horfa á nýja Greys Anatomy, þá er ég búin að eyða klukkutímum í að lesa eitthvað raus hjá hinum og þessum um leikinn sem öll hljóma á sama veg. Þá hefði ég frekar átt að eyða tímanum í mcdreamy.
:(
Frekar mikið mikið fúlt. Við áttum alveg skilið að vinna þennan leik, þetta var bara heppni í dönunum en núna fá þeir tækifæri til að bauna á mann. Helv. baunarnir.
ísl - dan
Ég er haldin algjöru egósentrísku viðhorfi gagnvart handboltaleiknum, við erum búin að vera undir í leiknum síðan ég byrjaði að horfa á leikinn í seinni hálfleik (eftir að hafa komið drengnum í rúmið) og því meira sem ég sekk mér niður í áhorfið því meira lendum við undir.. fjórum mörkum undir.. og nú þegar ég þoli þetta ekki lengur og fer að dreifa athyglinni þá allt í einu jafna þeir!
Algjörlega egósentrískt eins og ég segi.. en... hvað ef??
- -
10 min síðar: djöööö... hefði ekki átt að horfa á endinn.
Et stort stykke af Island
Danir eru álíka mikið að pissa á sig af spenningi yfir leiknum á morgun eins og Íslendingar. Þeir eru samt skíthræddir.. "En Olafur Stefansson har vi ikke i Danmark" sögðu þeir í fréttunum áðan og "et stort stykke af Island" áttu þeir við um Sigfús Sigurðsson.
Það er eins gott að við vinnum þennan leik, það var nógu erfitt að fá skotin á sig eftir tapið í fótboltanum í haust, en sigurinn á morgun verður bara ennþá sætari.
Það verður reyndar karlmannslaust hérna í hverfinu á morgun því Óli og fóstbræður hans hér á Stavnsvej verða á leik West Ham og Liverpool í London. Það verður bara að vera stelpu-handboltapartý þar sem við getum talað um þröngu treyjurnar.
-4°c
Það er BARA kalt þessa dagana. Frostið í morgun var -4°c en veðrið var fallegt og stillt. Það er venjulega þannig þegar það er frost að þá er enginn vindur. Um leið og það byrjar að hlýna þá hvessir. Það eru einhver lögmál skilst mér. En hvað veit ég, veit bara að það var KALT.
Núna er sólin farin að skína hins vegar og þessi litli snjór sem er hérna verður því fljótur að fara. Þeir eru duglegir að salta göturnar hérna og því höfum við ekki lent í neinum vandræðum á sumardekkjunum okkar. Um helgina ætlum við hins vegar að fara í "sumarhús" með Hildi og Sigfúsi. Óli klárar síðasta prófið sitt á morgun og á mánudaginn tekur við ný önn hjá okkur báðum.
ifish
Dem, ég var aðeins of fljót á mér að panta frá amazon í gær, þegar ég googlaði "ifish" í tengslum við síðasta blogg þá fann ég þennan: iFish ;)
strætó- og hjólamenning
Það var sterkur leikur hjá Akureyrarbæ að hafa strætóinn ókeypis. Sparnaðurinn er nær örugglega meiri en kostnaðurinn, fyrir utan að það er miklu skemmtilegra fyrir menningarlífið í bænum að hafa strætóinn fullan af allskonar fólki (líka fólki sem á bíla) heldur en hálftóma eða bara með rónum eins og í borg óttans.
Hérna í Danmörku er verið að tala um að borga fólki (í formi skattaafsláttar) að hjóla í vinnuna, nokkrar krónur per kílómeter. Það bæði myndi létta á umferðinni, minnka mengun og auka heilbrigði fólks. En þó að þetta ætti að vera nóg til að fá menn af stað þá þurfa menn líka einhverja áþreifanlega gulrót. Og skattaafsláttur er svo sannarlega eitthvað til að kveikja í fólki hérna.
Mér skildist að framkvæmdin ætti að vera þannig að atvinnuveitandinn skili inn vottorði um ákveðinn kílómetrafjölda hjá viðkomandi starfsmanni, en það hlýtur samt að vera hægt að fá einhverja græju á hjólið sem nemur kílómetrafjöldann, svona rétt eins og nike og ipod samstarfið, þar sem hlaupaskórnir senda upplýsingarnar um skokkið þitt inn í ipodinn og svo þegar þú tengir hann við tölvuna þína þá sendir hann þær upplýsingar inn á vef skokkhópsins þíns - sem gæti þá verið dreifður um allan heim.
Ég sé fyrir mér að næsta samstarf Apple verði við Gary Fisher. Það kemur ekkert annað til greina, enda langflottasti hjólagaurinn.
Það gæti verið græja sem heitir iFish ;)
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / samfélag / tækni /
0
dagur og vegur
Það er allt með kyrrum kjörum hér austanhafs. Sonurinn er hættur með bleiu sem er vissulega stórt skref og mikið þroskamerki. Hann tekur þessu vissulega með mikilli yfirvegun og ábyrgð eins og honum einum er lagið og hingað til hefur ekkert slys orðið.
Prentarinn okkar ákvað að stíflast skyndilega þegar við skiptum um blek um daginn. Við ræddum við eitthvað Epson online support sem benti okkur á bútík niðri í Viby, við fórum með prentarann þangað og þeir gátu ekki hreinsað hann - sem betur fer borguðum við ekkert fyrir tilraunina þeirra, en alvöru viðgerð hefði kostað rúmlega tvöfalt verð nýs prentara. Óli ætlar eitthvað að prófa að hreinsa hausinn eftir einhverjum leiðbeiningum sem hann fann einhversstaðar, þannig að fyrir liggur að versla nýjan prentara (þið heyrið hvað ég hef mikla trú á þessu..) :)
En það er ekki eina raftækið sem er að stríða okkur því uppþvottavélin er farin að taka upp á því að eyða öllu kvöldinu í að þvo upp, ekki beint efnahagslega hagkvæmt þannig að ég hef endurnýjað kynnin við uppþvottaburstann í nokkur skipti og það var ekki eins leiðinlegt og mig minnti, þetta er nefnilega ágætur tími að eiga einn með hausnum á sér. En ég held reyndar að vélin sé að taka við sér, hérna þarf maður að dæla í hana uppþvottavélasalti og gljáa reglulega, eitthvað sem við vorum ekki ekki vön heima en við héldum að við værum með tökin á.
Ég kláraði verkefni með hópnum mínum á mánudaginn og við hlutum viðurkenningu fyrir það frá skólastjóranum sjálfum, það var ánægjulegt. Hópurinn var líka skemmtilegur og gaman að vinna í honum og það skiptir öllu máli. Næsta verkefni er að gera portfolio á vefnum og þar sem ég hef verið að því síðan 1999 og er í raun búin með það verkefni, þá hef ég ekki miklar áhyggjur og er í raun í fríi út vikuna. Það gefur manni kannski tilefni til að tilraunast eitthvað.
Ég hef hins vegar meiri áhyggjur af því hvað ég er latur bloggari, ekki bara löt í því að skrifa sjálf frá degi og vegi heldur líka merkilega löt við að kommenta hjá öðrum. Ég þarf eiginlega að taka mig á í því að skrifa meira daglegt blogg svo ég hafi eitthvað til að rifja upp frá þessum tímum sem við búum hérna í danmörku. Það er nefnilega aðal málið - að safna minningum.
Óli er í tveimur prófum í þessari viku og er svo að fara til London í næstu viku, þeir nágrannarnir hérna á Stavnsvej ætla að fara á West Ham - Liverpool á "íslendingaleikvanginum". Mér skilst að þeir hafi bara fengið alveg fyrirtaks sæti.
Það er líka hentugt að Ryanair flýgur beint frá Árósum yfir á Stansted, tekur innan við klukkutíma.
Að því tilefni leyfði ég mér að panta nokkrar bækur frá Amazon þar sem ég hef verið haldin algjöru bókarsvelti síðustu mánuði (ætlaði að vera svo dugleg að versla bækur í DK en ég á eftir að finna almennilega bókabúð hér í AA.. það gengur ekki svo vel).
Ég pantaði:
- Transcending CSS: The Fine Art of Web Design (Voices That Matter)
- 1,000 Type Treatments: From Script to Serif, Letterforms Used to Perfection
- Don't Think Pink
- How to Be a Graphic Designer: Without Losing Your Soul
Danir halda ekki vatni yfir sínu handboltaliði þessa dagana, rétt eins og sumir. Þeir fjölluðu um glæsilega íslenska sigurinn á frökkum í hálfa mínútu í gær, og mér fannst það frekar vera sagt frá því sjónarhorni að frakkar hafi átt slæman leik heldur en að íslenska liðið hafi rúllað þeim upp. Kannski var það þannig, ég sá ekki leikinn (heyrði hann á netinu í hökti - það er svona svipað eins og að ýta alltaf á pásu þegar Óli Stefáns stekkur upp með boltann á lofti), en mér finnst líklegra að Danir hafi engan áhuga á því að sýna íslenska sigra, hvorki á íþróttavellinum eða í viðskiptaheiminum.
húsfrúarleikurinn
Það er mikið rætt í fjölmiðlum á íslandi um hátt matarverð þessa dagana. Sjálfri hlakkaði mig til áður en við fluttum að fara út í búð og kaupa nokkra poka af ferskum mat fyrir nánast engan pening, en sá draumur rættist varla, eða kannski var hann of háfleygur.
Flokkað sem danmörk / heimilið / matur / samfélag /
3
my portfolio
Jamm, komið upp aftur í endurbættri útgáfu. Ég er að reyna að veiða inn fleiri verkefni til að vinna að hérna heima og nú þegar eru nokkur komin í gang.
Ég ákvað líka að færa smá hönnunarblogg yfir á þessa síðu og ætla að reyna að taka það ekki of alvarlega heldur reyna frekar að finna eitthvað áhugavert og skemmtilegt til að setja þarna inn.
Hvað finnst ykkur?
áramótaheitin
Mér finnst ágætt að strengja áramótaheit svona ein með sjálfri mér. Ég ákveð til dæmis alltaf um hver áramót að vera duglegri að leika mér í grafíkinni, mála meira, vera skipulagðari, hreyfa mig meira, borða minni sykur, eyða meiri tíma með fjölskyldunni jafnframt því að lesa meira, leggja mig betur fram í vinnunni/skólanum, blogga meira og fara fyrr að sofa. Eins og gefur að skilja falla flest þessi atriði út í fyrsta mánuðinum þar sem það kemst ekki allt að í einu, eða komast ekki í gang fyrr en einhverntíman þegar líða tekur á árið og eru þá tekin fyrir til skiptis. Það er kannski bara allt í lagi? Áramótaheit eru kannski meira markmið sem snúast um það að maður vilji bæta sig, heldur en að setja sér reglur í lífinu.
gluggalaust heimili
Tölvunarfræðingurinn minn var í því að strauja harða diska í jólafríinu og setja upp á nýtt þannig að þegar við komum heim ákváðum við bara að taka gömlu tölvuna aðeins í gegn líka, agalegt hvað það sogast mikið af rusli inn í windows. Að því tilefni ákvað hann að setja ekki Windows, með öllum sínum service-pökkum inn aftur heldur prófa að hafa bara Linux kerfið Ubuntu og það er að heppnast svona líka vel.
Þar með er bara ekkert Windows á heimilinu.. feels good.
túristar í ársbyrjun
Þá er jólafríinu og hinum mikla ferðalagi lokið. Við erum komin heim og erum nokkurn vegin búin að jafna okkur á þessu öllu saman, búin að taka upp úr töskunum og þvottavélin snýr sér sem aldrei fyrr.
Þetta ferðalag frá Dalvík til Árósa tók hvorki meira né minna en 15 klukkutíma; frá hálf níu um morguninn til hálf tólf (íslenskum tíma - hálf eitt að dönskum) um kvöld. Það inniheldur tvær ferðir á einkabílum, tvær ferðir með leigubíl, eina rútuferð og tvær flugferðir. Þrátt fyrir það leið dagurinn nokkuð hratt og algjörlega áfallalaust. Það kannski munaði mestu að sonurinn svaf báðar flugferðirnar gjörsamlega af sér, sumum finnst eitthvað sefjandi við flugtak.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft / uppeldi /
3
Gleðilegt nýtt ár!
Undarlegt að nú sé komið árið 2007. Það gerir svo ískyggilega stutt í árið 2010 og það er eitthvað svo framtíðartryllislegt..
Agalegt hvað tíminn líður. Gleðilegt ár samt :)



RSS veita