vefrýni - noi.is

Mér finnst alltaf gaman að skoða þegar nýir vefir eru að opna og sjá hvernig verið er að breyta og hvað er verið að leggja áherslu á. Mig langaði til að minnast á þrjá núna; noi.is, eymundsson.is og amazon.com. (Kannski breyttist amazon.com fyrir löngu síðan en ég hef ekki tekið eftir því fyrr af því ég fer yfirleitt inn á amazon.co.uk því þar hef ég yfirleitt fengið vörurnar oggópoggó ódýrari og aðeins fyrr). EN anyhow, ég ætlaði að minnast á þessa þrjá en þegar ég byrjaði á fyrsta þá gat ég bara ekki hætt að rassskella þannig að ég geymi hina til síðari tíma.

Fyrir þá sem hafa á huga að lesa bendi ég á að lesa áfram (duh!) en fyrir hina er ég ekkert að troða þessu uppá þá. Og munið, ég er ekkert í sérstaklega slæmu skapi og ég hef ekkert útá neinn að setja persónulega, þetta bara stakk mig illilega og er, að sjálfsögðu, eingöngu mín skoðun.


Nýr vefur fyrir Nóa Síríus: www.noi.is sem opnaði núna 1. desember (ég athugaði sérstaklega ártalið því fyrir mér hefði þetta getað verið 1996) er afspyrnu ljótur og óaðlaðandi (hugsaðu bara um bragðið af súkkulaðinu og þú sérð ekki fyrir þér þetta útlit), illa hannaður (ath það er ekki það sama) og keyrir á gamalli virkni (töflum).
Ef þeir hafa borgað mikið meira en 0kr fyrir þetta þá er það algjört rán, og í rauninni er þetta algjört stórslys, glapræði og jafnvel skaðabótaskylt því ég vil meina að þetta skaði ímynd þeirra (og við erum að tala um peninga hérna). Því öll sú branding vinna sem Nói Sírius, í samstarfi við Fíton held ég, eru búnir að byggja upp, þurfa þeir að viðhalda í öllu markaðsstarfi sem þeir eru að vinna. Og vefurinn er stór hluti af því.
Tökum þetta í skrefum:


1. Afspyrnu ljótur og óaðlaðandi.
Ég veit það að menn deila ekki um smekk. En sem grafískur hönnuður hef ég lært sitthvað um klassíska fagurfræði auk þess sem ég hef skoðað tíðaranda og það sem þykir vera fallegt í dag. Sem dæmi um það sem margir eru að eltast við í dag er þessi dásamlega speglun; að allt speglist eins og í vatni eða á stáli og það má finna það ítrekað hjá apple (bæði á vefnum og í stýrikerfinu) og hjá Glitni sem Jonni gerði svo snilldarlega. To name a few.
Auðvitað er ekki alltaf viðeigandi að eltast við trenda dagsins í dag en það er ALDREI réttlætanlegt að eltast við 6 ára gamla trenda hjá framsæknu fyrirtæki, eins og þessir forljótu (aftur, minn smekkur) bevel hnappar, sem eru ekki hnappar heldur nokkurskonar flokkafyrirsagnir eða aðalvalmyndir.
15 ára gamlir trendar eru kannski í lagi en þá erum við farin að tala um allt aðra hluti (retro eða að gera í gamaldagsstíl - ekki alltaf viðeigandi).


2. Illa hannaður.
Ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja í þessu. Þessir vefhönnuðir hafa greinilega ekki lesið einustu bók um usability eða notendavæna hönnun. Þeim til hægðarauka get ég bent á Don't Make Me Think sem er auðlesin, svo og á Jacob Nielsen sem er vissulega sérvitringur en ekki eins vitlaus og hann lítur út fyrir að vera.
Annars, here goes:
Fyrirsagnirnar á fréttum og greinum líta út eins og tenglar (bláir og feitletraðir) en eru ekki tenglar og hafa ekki virkni, það er virkilega pirrandi að þurfa að leita allsstaðar að "meira" eða "lesa uppskrift" þegar maður heldur að maður geti smellt þarna.
Röðunin á þessum (ljótu) aðalvalmyndahnöppum breytast þegar maður kemur inn á undirsíðuna, þá er "uppskriftir" allt í einu orðin fremsta valmyndin, sem ruglar mann alveg í ríminu.
Ef maður smellir á mynd undir flokknum vörumerki þá opnast síðan í nýjum glugga (sem er óþolandi útaf fyrir sig) en fyrir utan það þá er slóðin eitthvað: http://noi.is.2.hysir.net sem er allt annað en traustvekjandi og textinn sem maður fær upp er "hér koma upplýsingar og fróðleikur um vörumerkið ..". Í fyrsta lagi þá á maður að vera búinn að setja inn allt meiriháttar efni áður en vefurinn er settur upp. Í öðru lagi þá hefðu þeir geta leyst þetta þannig að myndin á forsíðunni væri hreinlega ekki tengill ef það eru engar upplýsingar á bakvið hann.
Merki fyrirtækisins er í hægra horni á forsíðunni en í vinstra horninu á undirsíðunni. Heimilisfangið er í of smáu letri undir merkinu og á í raun heima annarsstaðar en undir merkinu.


3. Gömul virkni
Fyrir nokkrum árum urðu þáttaskil í þróun á vefnum, sennilega ekki hægt að nefna nákvæmlega hvenær því þau urðu ekki á einum degi eða með einum atburði, en hluti af því er það að menn eru sammála um að vinna eftir XHTML staðli sem byggir á því að útlit vefsíðunnar er nær alfarið sett upp í utanaðliggjandi CSS skrá til þess að aðgreina innihaldið frá útlitinu. Það er gert með því að setja efni ekki fram í töflum eins og áður var gert -og er gert á noi.is, heldur í lögum (e.layers eða div). Þannig á að vera hægt/auðveldara - með mismunandi CSS skrám - að skoða innihaldið í hvaða nettengda tæki sem er, hvort sem það er tölva og vafri eða farsími, leikjatölva, ísskápur eða brauðrist.. já, þeim fjölgar nefnilega hratt og þá er eins gott að vera tilbúinn og fylgja þeim stöðlum sem menn úti í heimi eru búnir að setja fyrir faginu, það var ekki gert að ástæðulausu. Ég er alltaf að æfa mig í því og er ekki orðin neitt sérstaklega góð, en ég allavega læt ekki sjá mig gera þetta svona lengur. Þeir sem brúka ennþá töflur og selja það dýrum dómi, eru líklega þeir sem eru of gráðugir til að eyða tíma sínum í eitthvað eins og endurmenntun (eða menntun yfir höfuð..)


Ég gæti haldið endalaust áfram, til dæmis með það að tala um innihald vefsins, framsetningu og texta en aðalmálið er það að nýr vefur á að þýða uppfærslu, nýja hugsun, nýjar útfærslur út af breyttum forsendum og nýjum hugmyndum.
Hvar eru leiðbeiningarnar fyrir það hvernig sé best að vinna/tempra súkkulaði? Af hverju skipa allir þeir bæklingar sem fyrirtækið hefur gefið út ekki meiri sess? Hver er markhópurinn fyrir þennan vef? -allir? enginn??
Fyrir utan það á vefur fyrirtækisins Nóa Síríusar á að anga af súkkulaðiilmi og vekja sterka löngun í yndislega rjómasúkkulaðið þeirra með hnetum og rúsínum eða dúnmjúkt hlaup. Þessi síða fær mig, súkkulaðifíkilinn, til að langa til að fara í nammibann.


Í sporum NS myndi ég fara til Design EuropA sem virðast bera ábyrgð á þessum ósköpum og fá endurgreitt, setja upp gamla vefinn sem er snöggtum skárri med det samme, því svona vefsmiðir eiga að SKAMMAST SÍN!!

Sunnudagur 03. desember 2006 kl. 21:41
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur. / netið. Þar eru 107 færslur. / tækni. Þar eru 60 færslur.

/ Álit

:

Ha ha ha... ég held að þetta sé hrekkur. Einhver hefur hakkað sig inná síðuna þeirra og sett þetta upp. Það getur eiginlega ekkert annað verið. /fliss/

04.12.06 00:06


dagný:

meeeen, i hope so.

04.12.06 08:42


Kristleifur:

Flott grein hjá þér Dagný.

Ég er svo innilega sammála þér með þennan vef.

Það er þrennt sem ég vil bæta við.


1. Hoverið virkar frekar illa á hnöppunum

2. Það er fáránlegt að hafa hnappana gráa á undirsíðunum (maður heldur að þeir séu óvirkir)

3. Af hverju eru þessar litlu myndir á uppskrifta og leikja hnöppunum en ekki á hinum hnöppunum. Og meira að segja bara á forsíðunni. Ekkert samræmi.

Ég myndi láta þessa gæja (eða píur) hjá Design EuropA borga fyrir að fá að búa til svona vef.

04.12.06 16:40


SHJ:

Góður punktur.

Sjitt hvað Design EuropA er að taka í þurrt. Þvílík hönnun & usability, þetta hlýtur að vera djók. Flórsykurinn á kökunni er þó afbragðs texavinna: ný heimasíða

UPPLÝSAR!?

AUGLÝST SÍÐAR? Þið eruð að auglýsa það núna! Það er viðtekin venja að auglýsa ekkert að maður ætli að auglýsa eitthvað seinna, kannski, hugsanlega.

05.12.06 07:55


Jonni:

Þú ert ekki að grínast ... er það bara ég er vefhönnun á hraðri niðurleið á Íslandi?

DesignEuropa ætti að skammast sín ... þetta er ekki fólki bjóðandi, djöfull er ég reiður!

Eymundsson síðan finnst mér svosem sæmileg (miðað við noa.is amk.) og Amazon síðan er búin að vera í næstum ár í þessari mynd.

05.12.06 11:10


dagný:

nákv. þetta er gjörsamlega út í hött.
Nóa konfektið mun ekki bragðast eins í ár :(

05.12.06 13:17


guggiZH:

það má náttúrlega ekki gleymast að kaupendur þessarar vinnu bera töluverða ábyrgð. maður hefði nú haldið að markaðsdeild jafn stórs fyrirtækis og nóa hefði einhverja hugmynd um hvað er í gangi....

en vissulega er þetta sprenghlægilegt ;)

11.12.06 20:37