jólarestin
Jólin eru búin að fara allt of vel með okkur, ég held að ég sé búin að þyngjast um þrjú kíló og skrifast þau eingöngu á súkkulaðiát og hreyfingarleysi. Getið farið að kalla mig kakómassa ef þetta heldur áfram svona. Danni er líka kominn á lagið með að borða súkkulaði, hann sem fékk það nær aldrei áður en við komum.
Jólin eru alltaf að verða skemmtilegri þegar sá litli eldist og er að læra inn á alla þessa undarlegu jólasiði og getur spurt út í þetta. Síðustu morgna hefur hann til dæmis viljað kíkja í skóinn um leið og hann vaknar.
Jólin á Hauganesi voru mjög ljúf, staðurinn er svo friðsæll og kyrr. Við náðum að grípa í spil við stúlkurnar á móti og það var mjög gaman.
Framundan er áramótaveisla á Dalvík og það verður ekki lítið fjör; um 30 manns í matarboði og ógurlegt sprengjuregn í vændum. Þann þriðja jan á næsta ári leggjum við svo af stað "heim" til Danmerkur, og alls óvíst hvenær við komum aftur í heimsókn.
Það er góður siður að taka saman árið í einni færslu, ég er að hugsa um að gera það núna seinnipartinn, þó svo það verði ekki mjög ítarlegt.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

