engin heimþrá vegna veðurs
Síðustu daga er búinn að vera íslandsstormur hérna á glugganum hjá mér. Það var einhverja nóttina sem ég vaknaði klukkan fjögur og þá var glerið í útidyrahurðinni að gefa sig, ég sver'ða. Reyndar glymur svolítið mikið í járnpallinum sem er hérna fyrir framan, en við erum á efri hæð og það er stór pallur á milli okkar húss og næsta húss á móti. Hann á það til að hristast duglega í roki og slagveðursrigning er hinn mesti trumbusláttur á pallinn.
Ég held að veðurguðirnir séu að minna mig á það að það sé ekkert mjög langt í brottför til íslands, 9 dagar.. það er ekki neitt :)
Jólapakkarnir fara á morgun, snillingurinn hjá skipafjelagi íslands ætlar að bjarga jólunum og þar með hefur stressið minnkað til muna. Þið vitið jú hvað ég get orðið tens ;)
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

