árið 2006

Ég er með óskaplega lélegt minni. Ég man varla eftir því hvað gerðist á þessu ári þrátt fyrir að þetta ár sé það viðburðaríkasta lengi. Þarf að gera eitthvað í þessum minnisvandamálum, til dæmis að reyna að rifja upp.. Ég man að um áramótin síðustu áttum við íbúð í vesturbæ Reykjavíkur og vorum bæði í fínum störfum á framabraut og einkasonurinn átti bókað leikskólapláss í besta leikskóla borgarinnar. Hvernig var hægt að klúðra þessu?


Í mars fórum við í kynningarferð til Danmerkur og fljótlega upp úr því ákváðum við að sækja um framhaldsnám í Árósum.
Þetta vatt svo upp á sig eitt af öðru; í maí fór íbúðin okkar á sölu og viku síðar var hún seld. Í júní hætti ég í vinnunni, í júlí seldum við allt draslið, pökkuðum afgangnum niður, sendum einkasoninn "í sveit" til ömmu og afa og áður en við vissum af var íbúðin okkar orðin tóm og við vorum ekki einusinni með lykil.


Sem betur fer áttum við ennþá bíl og á honum fórum við norður, dvöldum þar í nokkra daga og fórum svo með fullan bíl með skipi til Danmerkur. Þar tók við okkur snotur íbúð, 25 stiga hiti og fullt af innkaupum.
Í íbúðina keyptum við okkur rúm, eldhúsborð, hillu, sjónvarp, tvenn tölvuborð og eina tölvu í viðbót.
Já, svona er að selja íbúð í borginni á góðum tíma ;)
Svo hófst innskráningin í kerfið, tæklið við dönskuna, stofna bankareikning, fá símann og netið og gsm og allt það til að virka, dagmömmumálin og svo skólinn. Þetta gekk allt ævintýralega vel fyrir sig og ekki frá neinu að segja í raun.


En staðan við þessi áramót er aðeins önnur en við síðustu. Við eigum enga fasteign, enga atvinnu, enga fasta innkomu, bankareikningurinn er aðeins þynnri en þá og við vitum ekkert hvað við eigum af okkur að gera næsta sumar.
En nánasta framtíð felur í sér nám og meira nám á spena hjá lánasjóðnum á meðan við horfum á íbúðarpeningana okkar vaxa í vaxtalandinu góða.


Það voru nokkur atriði sem stóðu uppúr hjá mér á árinu, af þeim má nefna:
Bíómyndir: Þær myndir sem höfðu hvað mest áhrif á mig voru Inconvenient Truth og Loose Change. Sú fyrri fjallar á ískyggilegan hátt um loftlagsbreytingar og er sannarlega hryllingsmynd ársins, sú seinni fjallar um ótrúlegar kenningar um það að bandaríska ríkisstjórnin sjálf hafi staðið á bakvið árásirnar á world trade center. Auk þess get ég ekki sleppt því að nefna Bamba 2 þar sem hún er búin að rúlla reglulega heima síðan í sumar, syni mínum til ómældrar ánægju og mér reyndar líka því hún er svo ákaflega fallega teiknuð. Að lokum langar mig að segja the Holiday því ég sá hana í bíó rétt fyrir jól með nokkrum kvensum úr fjölskyldunni og ég held að það sé ekki hægt að finna meiri stelpubíómynd (og takk fyrir poppið Siggi ;).


Bækur: Ég las reyndar ekki mikið af bókum núna í ár frekar en áður, þannig að það kemur kannski engum á óvart að Draumalandið með Andra Snæ Magnasyni trónir á toppnum yfir áhrifamestu bækur ársins. Ég lít eiginlega á líf mitt núna sem fyrir eða eftir Draumalandið. Annars fékk ég líka eina bók í jólagjöf sem ég er búin að fletta mikið í vikunni og það er snilldarbókin 2006 í grófum dráttum eftir Halldór Baldursson sem er algjör snilld.


Dót ársins: Að sjálfsögðu mín elskulega macbook pro sem eltir mig hvert sem ég fer. Eins og með Draumalandið (og son minn) þá vísa ég í líf mitt sem fyrir og eftir macbook. Ég gæti líka nefnt Sharp 32" flatskjáinn okkar en saman er þetta ódauðleg tvenna.


Viðburðir: Í júlí fór ég á tvenna tónleika, annars vegar óvænt á tónleika Sigurrósar undir Hrauni í Öxnadal, hins vegar á Belle and Sebastian og Emiliönu Torrini í bræðslunni á Borgarfirði Eystri. Erfitt að toppa þetta.


Í allt var árið 2006 mjög viðburðaríkt ár sem verður sennilega lengi í minnum haft. Hvað ætli gerist á því næsta?

Sunnudagur 31. desember 2006 kl. 17:12
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.