árið 2006
Ég er með óskaplega lélegt minni. Ég man varla eftir því hvað gerðist á þessu ári þrátt fyrir að þetta ár sé það viðburðaríkasta lengi. Þarf að gera eitthvað í þessum minnisvandamálum, til dæmis að reyna að rifja upp.. Ég man að um áramótin síðustu áttum við íbúð í vesturbæ Reykjavíkur og vorum bæði í fínum störfum á framabraut og einkasonurinn átti bókað leikskólapláss í besta leikskóla borgarinnar. Hvernig var hægt að klúðra þessu?
jólarestin
Jólin eru búin að fara allt of vel með okkur, ég held að ég sé búin að þyngjast um þrjú kíló og skrifast þau eingöngu á súkkulaðiát og hreyfingarleysi. Getið farið að kalla mig kakómassa ef þetta heldur áfram svona. Danni er líka kominn á lagið með að borða súkkulaði, hann sem fékk það nær aldrei áður en við komum.
Jólin eru alltaf að verða skemmtilegri þegar sá litli eldist og er að læra inn á alla þessa undarlegu jólasiði og getur spurt út í þetta. Síðustu morgna hefur hann til dæmis viljað kíkja í skóinn um leið og hann vaknar.
Jólin á Hauganesi voru mjög ljúf, staðurinn er svo friðsæll og kyrr. Við náðum að grípa í spil við stúlkurnar á móti og það var mjög gaman.
Framundan er áramótaveisla á Dalvík og það verður ekki lítið fjör; um 30 manns í matarboði og ógurlegt sprengjuregn í vændum. Þann þriðja jan á næsta ári leggjum við svo af stað "heim" til Danmerkur, og alls óvíst hvenær við komum aftur í heimsókn.
Það er góður siður að taka saman árið í einni færslu, ég er að hugsa um að gera það núna seinnipartinn, þó svo það verði ekki mjög ítarlegt.
frétt, mbl
Þetta er (m)álið: Mbl.is - Frétt - Ný gagnamiðstöð á Íslandi gæti skapað 200 störf , svona allavega á meðan sæstrengir eru ekki að bila.
jólastemmningin í baunalandi
Það er skemmtilegt á margan hátt að upplifa aðventuna hérna í Danmörku og með þessum alþjóðlega bekk í skólanum. Við erum svolítið búin að tala um hvernig jólasiðir eru í okkar mismunandi löndum. Flest skólasystini mín eru frá baltnesku löndum; Eistlandi, Lettlandi og Litháen og svo frá Danmörku en líka Bretlandi, Suður-Afríku og Írak.
Okkur finnst jólasveinarnir okkar íslensku alltaf svo spes og flestir eru undrandi að þeir séu þrettán, en bekkjarfélögum mínum kemur það ekkert á óvart að þeir séu hrekkjóttir, það eru "Nissarnir" dönsku líka og líka þeir baltnesku. Þeir eiga reyndar ekki mömmu sem að étur óþekk börn, það er líka svolítið mikið sick!.. gengið einum of langt (í þessum samanburðarsögum á maður alltaf þetta tromp).
Jólasveinarnir hérna gefa ekki í skóinn (nema að ég heyrði að það væri siður á suður-Jótlandi einhverntíman, veit ekki meira) en margar fjölskyldur eru með dagatal með dóti, nokkurs konar Kalendargave. Þá eru stórmarkaðirnir og dótabúðirnar líka með mikið af dóti á lágu verði; 10, 20 og 30kr þannig að það er alveg hægt að setja á dagatalið annað en nammi.
Það er svona svipað og að fá í skóinn nema að það er aðeins minni lygi tengd því.
Jólakortin kláruðum við á einum mánuði, frá því að hafa tekið myndirnar, sent þær til Shutterfly, fengið þau til baka, handskrifað persónulega kveðju á hvert og eitt alls um 60 stykki og það án þess að drekka einn sopa af malti og appelsíni, náði mér reyndar í smá pebbernødder einu sinni. Ég held að ég gæti ekki fjölfaldað kveðju á jólakort þó svo mér finnist allt í lagi að fá þannig kort, en mér finnst líka gaman að hugsa til þess sem fær kortið í þessa mínútu sem tekur að skrifa á það.
Þó svo að það sé komið myrkur uppúr kl 16 þá eru menn ekki að setja jólaseríu í hvern glugga og á hvern runna því að rafmagnið er dýrt (það eru heldur ekki ljósastaurar nema við aðal umferðaæðar og við nokkur gatnamót, vekur athygli hjá hinum "upplýsta" Íslendingi). Danir kaupa jólatréð í byrjun desember og taka það svo niður í kringum 26. des því að þá eru jólin búin og áramótagleðin tekur við. Í íbúðinni hérna á móti okkur sé ég fagurskreytt jólatré inni í stofunni, heima skreyttum við alltaf á þorláksmessukvöld og pökkuðum saman í janúar.
Í útvarpinu hérna má heyra jólalag einstaka sinnum (reyndar er útvarpið kapítuli útaf fyrir sig því það er að öllu jöfnu svo arrrfa-slakt; mætti segja að það sé bara RUV1 og Mónó í boði). Heima er öllu drekkt í jólalögum og bjöllulátum að fólk þarf að skammta sér útvarpshlustun til að verða ekki geðveikt.
Það er heldur engin pressa í útvarpi, sjónvarpi eða í blöðum um að það þurfi að þrífa allt hátt og lágt og kaupa allt milli himins og jarðar til að vera gildur meðlimur í jólahaldinu. Ég hef ekki orðið vör við smákökubaksturskeppni eða jólahlaðborðaboðhlaup. Í rauninni er ekkert jólaáreiti, meira að segja ruslpósturinn í póstkassanum hérna á Árósasvæðinu hefur ekkert breyst eða aukist -var kannski bara nógu mikill fyrir, þannig að eftir nokkrar flettingar fer hann bara í endurvinnslutunnuna eins og áður.
Hérna leggja menn mest upp úr því að hafa það huggulegt, borða eplaskífur með sultu og flórsykri, mandarínur og rissengrød með sultutøj. Skreyta með heimagerða jólaskrautinu og syngja jólalög. Danni sem er hjá dagmömmu hérna í hverfinu er búinn að fara þrisvar sinnum í messu í desember, með tilheyrandi sögum og söngi og kemur heim með eitthvað jólaföndur á hverjum degi.
Það er svolítið undarlegt, og svolítið þægilegt í hjartanu að losna undan þessum íslenska jólaþunga enda heyrist mér á fréttum að heiman að margir séu að bugast undan þessarri vitleysu á tíma sem á að einkennast af friði og ró, og fá að upplifa skemmtilega og rólega aðventu. Flugið okkar heim er á laugardaginn og þá kemur skammturinn væntanlega, nema að við komum bara með þessi huggulegheit með okkur.
Að lokum, skemmtilegar og öðruvísi útsetningar af hefðbundnum jólalögum má finna hjá Sufjan Stevens. Sjáiði hvað þetta er fallegt.
Mbl.is - Frétt - Norðurpóllinn íslaus fyrir 2040
Þessi frétt er týpísk.. Mbl.is - Frétt - Norðurpóllinn íslaus fyrir 2040 - og einu afleiðingarnar sem fréttamenn á mogganum geta fundið er að þá verði greiðfært fyrir siglingar yfir pólinn í framtíðinn.. jibbíjey.. ..eða þannig!!
Afleiðingarnar verða hrikalegar.
gleðileg jól.
engin heimþrá vegna veðurs
Síðustu daga er búinn að vera íslandsstormur hérna á glugganum hjá mér. Það var einhverja nóttina sem ég vaknaði klukkan fjögur og þá var glerið í útidyrahurðinni að gefa sig, ég sver'ða. Reyndar glymur svolítið mikið í járnpallinum sem er hérna fyrir framan, en við erum á efri hæð og það er stór pallur á milli okkar húss og næsta húss á móti. Hann á það til að hristast duglega í roki og slagveðursrigning er hinn mesti trumbusláttur á pallinn.
Ég held að veðurguðirnir séu að minna mig á það að það sé ekkert mjög langt í brottför til íslands, 9 dagar.. það er ekki neitt :)
Jólapakkarnir fara á morgun, snillingurinn hjá skipafjelagi íslands ætlar að bjarga jólunum og þar með hefur stressið minnkað til muna. Þið vitið jú hvað ég get orðið tens ;)
piparkökujól
glöggir taka eftir að það eru krúttlegar jólamyndir komnar hérna upp en ég fékk svo skemmtileg piparkökuicon send frá iconbuffet í morgun. Þessi icon eru svo sæt. Ef einhver vill bíttast á þá endilega hafi samband við mig, ég á hellings.
Norðurlandameistari í innpökkun
Jólagjafirnar þetta árið eru komnar í pappír og eru ferðbúnar til íslands.
Blaðið vs TV2 news
Það er svolítið skondið að horfa á nýju dönsku fréttastöðina: TV2 News, þeir eru með sömu grafísku elementin og ákaflega svipað fótaletur og Blaðið sem er gefið út í Reykjavíkinni (fann ekki link á blaðið).
Flokkað sem danmörk / hönnun / samfélag /
2
vefrýni - noi.is
Mér finnst alltaf gaman að skoða þegar nýir vefir eru að opna og sjá hvernig verið er að breyta og hvað er verið að leggja áherslu á. Mig langaði til að minnast á þrjá núna; noi.is, eymundsson.is og amazon.com. (Kannski breyttist amazon.com fyrir löngu síðan en ég hef ekki tekið eftir því fyrr af því ég fer yfirleitt inn á amazon.co.uk því þar hef ég yfirleitt fengið vörurnar oggópoggó ódýrari og aðeins fyrr). EN anyhow, ég ætlaði að minnast á þessa þrjá en þegar ég byrjaði á fyrsta þá gat ég bara ekki hætt að rassskella þannig að ég geymi hina til síðari tíma.
Fyrir þá sem hafa á huga að lesa bendi ég á að lesa áfram (duh!) en fyrir hina er ég ekkert að troða þessu uppá þá. Og munið, ég er ekkert í sérstaklega slæmu skapi og ég hef ekkert útá neinn að setja persónulega, þetta bara stakk mig illilega og er, að sjálfsögðu, eingöngu mín skoðun.
mérlangarí svo margt...
... ég get varla byrjað að telja..
í grófum dráttum bókin eftir Halldór snilling Baldursson, við öll eftir Steingrím Joð, kærleikskúlan 2006 í safnið..
eitthvað sameiginlegt með þessu? íslenskt, já takk!



RSS veita