veður

Þegar maður hefur lítið að segja þá er ágætt að tala bara um veðrið.

Í gær snjóaði þannig að eftir tók, ekkert sérstaklega mikið samt, nóg til að sjá spor eftir sig. Það var heldur ekkert mikið rok og ekkert ógurlega kalt. Bara árstíðin að minna á sig, veturinn nálgast. Ég fór í skólann í gær en kennarinn kom ekki (vegna veikinda barns, ekki vegna snjókomunnar) svo ég fór heim aftur.
Hins vegar varð ég svolítið skelkuð með eitt, uppúr hádegi sá ég á netinu að brúin yfir Stórabelti var lokuð og einnig höfðu siglingar með ferjunni sem siglir milli Árósa og Sjálands, fallið niður. Ef þetta er svona eftir smá ofankomu í október, hvernig verður það þá að morgni 22. desember þegar við ætlum að keyra til Kastrup og fljúga til Íslands?


Fimmtudagur 02. nóvember 2006 kl. 13:45
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

mundi:

já það verður líklega að treysta á guð og lukkuna með það að ekki snjói einmitt þann sólarhringinn... ...

02.11.06 22:59


baddy sys:

jiminn lokað vegna smá ofankomu, getur ekki hafa verið lokað af annarri ástæðu sem er ekki líkleg til að koma upp í des???

02.11.06 23:17


almar:

Þetta var nú ekki "bara ofankoma" miðað við fréttirnar, þar var þetta kallað fárviðri :)

http://visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061101/FRETTIR02/61101091/1091

04.11.06 13:05


dagný:

já ok... ég varð ekki vör við það..

04.11.06 23:26


mundi:

þarna mun vera nákvæmlega sama lögmál og er hérlendis landshluta á milli. það verður mun meira kaos í tommu af jafnföllnum í Reykjavík en á Akureyri sem dæmi... hér eru menn óvanari slíku og ekki síður heldur frekar, mun mun fleiri sem þurfa að komast leiðar sinnar á sama tíma. flóknara er þetta nú ekki !!! :)

en ég mundi panta gistingu í kuben nóttina fyrir brottför til að vera viss ;)
http://www.jhar.dk/tenglar.php

06.11.06 18:41


baddy sys:

hey varstu búin að sjá þetta? http://moegtoej.dk/greykjalin.html

10.11.06 00:30


baddy sys:

ætli hún sé skyld okkur??

10.11.06 23:59


gunna:

ji.. en fyndið Baddý, kannski einhver frænkan!

Já, þetta með veðrið. Ég furðaði mig mjög yfir allsherjarástandinu sem myndaðist þegar það snjóaði einhverja sentimetra í Seattle um árið - jafnfallinn jólasnjór, mjög fallegt - en það fór allt á hvolf gersamlega. Skólum frestað, fólk fór ekki til vinnu og menn voru skrallandi hægri vinstri á vegum úti.
En þar er enginn með vetrardekk, keðjur né neitt slíkt, og það borgar sig ekki að eignast svoleiðis fyrir þessa örfáu daga á ári sem þess þarf. Fólk er óvant að keyra í hálku og snjó og kann ekki tökin sem að við sem vön erum slíku lærum. Fannst þetta alltaf hálf kjánalegt hvað það varð mikið vesen út af litlu, en fólk er bara ekki vant þessu.

Það er svipað hér. það snjóaði nokkur korn núna síðla síðasta veturs og það varð allt vitlaust! Það snjóaði ekki nóg til að setjast á vegina einu sinni en fólk var alveg dolfallið, stóð skælbrosandi og horfði til himins og hafði áhyggjur af því að komast ekki heim! Skondið :)

12.11.06 14:38


dagný:

jii, en fyndið...
og þetta með veðrið, ég verð einmitt alltaf jafn undrandi á því að fólki komi þetta á óvart, það hlýtur samt að snjóa eins og annað hvert ár ef ekki oftar á Írlandi, t.d.

12.11.06 20:29


baddy sys:

veistu eitthvað hvort hún er skyld okkur...ég er þvílíkt forvitin sko!!!

12.11.06 22:19


dagný:

veit ekki.. spurðu hana ;)
annars er þetta svona samkvæmt íslendingabók:
http://reykjalin.com/blog/myndir/tree.png

13.11.06 13:15


baddy sys:

djöö ég fann hanan ekki hjá mér!!! en ætli þetta sé barni flugmaður sem er pabbi hennar??!

13.11.06 16:46


dagný:

nei, hann er arkitekt

13.11.06 20:33