úr mér allur vindur
Já, það er úr mér allur vindur. Í dag skiluðum við lokaverkefni annarinnar í skólanum þrátt fyrir að lokaskil séu ekki fyrr en á morgun og ég held að það hafi gengið alveg frá mér. Ég var í 4 manna hópi með einum dana, stelpu frá eistlandi og annarri frá lettlandi, mjög hressir krakkar nema bara fjári ungir .. það fær mann bara til að yngjast aðeins upp, er það ekki? Ekki veitir af.
Eftir skóla fór ég aðeins í Mollið sem er rétt við hliðina á skólanum hans Óla (óréttlátt, mér finnst að það eigi að vera hjá mínum skóla...) og það var ekki að hjálpa hausverknum. Heima var sonurinn með ragettu í rassinum (sennilega af því mig langaði svo mikið í ís og lét það eftir mér/okkur).
Núna ætla ég að setjast upp í sófa með bókina og horfa á eitthvað skemmtilegt.
Og sofa svo út á morgun.
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur. / skólinn. Þar eru 11 færslur.
/ Álit
nú ég hélt að það hefði verið blá nammið sem kom með ragettuna!!! hehhe

