framhald á: akureyri, best í heimi?

Það er gaman að fá þessa umræðu af stað og það væri gaman að halda henni áfram, ég setti inn nýtt álit á færsluna: Akureyri - best í heimi. Í staðin fyrir að setja þetta nýja álit inn sem nýja færslu þá væri bara betra að halda áfram þar sem frá var horfið.
Ég vildi bara svona benda á það. Annars ekkert merkilegt títt. Engar fréttir eru góðar fréttir.. right?


Þriðjudagur 21. nóvember 2006 kl. 17:17
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.

/ Álit

:

Samkvæmt Lemony Snickett bókinni sem ég er að lesa (nr. 8) þá er þessi staðhæfing alls ekki rétt.

Engar fréttir eru góðar fréttir - segjum sem svo að einhver er of upptekinn við að halda sér frá því að renna ofan af húsþaki til að segja þér fréttirnar, þá passar það ekki.

Engar fréttir eru vondar fréttir - passar ekki heldur, því einhver gæti verið að taka við ávísun úr lottóvinningi og verið í beinni útsendingu og þessvegna ekki getað hringt í þig.

Þannig að:
Engar fréttir eru engar fréttir.

21.11.06 19:28


dagný:

skarplega athugað skarphéðinn!

21.11.06 20:45