ferðahelgi

Síðustu dagar eru búnir að vera magnaðir, tengdó komu á fimmtudaginn og Danni fékk þriggja mánaða skammt af dekri á fjórum dögum, allir höfðu voða gott af því.
Í gær renndum við á fáknum til höfuðborgarinnar Kaupmannahafnar þar sem við fórum út að borða og gistum á íslensku gistiheimili, en þau eru víst ófá á svæðinu. Í morgun keyrðum við þeim út á flugvöll, kíktum svo aðeins á strikið, í nokkrar verslanir og niður á Nýhöfn en lögðum af stað aftur "vestur" uppúr hádegi. Á leiðinni lentum við í hávaðaroki og hífandi hagléli, þannig að við óttuðumst um lakkið á bílnum um tíma. Brúin yfir stórabelti var líka ekkert lamb að leika við í þessum 20metrum á sek en fákurinn klauf vindinn eins og hann hefði aldrei gert annað og skilaði okkur heim um kaffileytið. Eins gott að Blönduóslöggan leynist ekki á hraðbrautinni.
Gestirnir okkar fengu hins vegar töluvert lengra ferðalag sem er ekki lokið enn. Þau áttu semsagt að fara í loftið á leið til Akureyrar kl 11:25 en fóru af stað um kl 17, og þurfa þar að auki að lenda í Keflavík og keyra í rútu norður. Ömurlegur endir á annars góðu ferðalagi.


Sunnudagur 12. nóvember 2006 kl. 21:01
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

"tengdó":

Sæl og blessuð. Innilega takk fyrir síðast, mjög skemmtilega heimsókn og dásamlegheit. Sem betur fer er stutt til jóla, ég er strax farin að hlakka til að fá ykkur heim. Heimferðin var að vísu heldur lengri en við gerðum ráð fyrir, en það gerir ekkert til, hún skyggir ekkert á góða ferð. Kær kveðja til allra frá tengdó/mömmu/ömmu.

13.11.06 15:13


dagný:

gott að heyra að þið komust að lokum á leiðarenda :)

13.11.06 16:22