akureyri - best í heimi
Ég las þetta í morgun:Frétt - Segir koma á óvart hversu menntunarstig á Eyjafjarðarsvæðinu sé lágt - og svo las Óli þetta líka í skólanum og sendi mér í pósti í morgun.. greinilega bæði að hugsa það sama.
Ég hef aldrei botnað í þessu með "þekkt láglaunasvæði". Ég hef heyrt í fólki sætta sig við lægri laun á Akureyri en í Reykjavík vegna þess að það "sé á láglaunasvæði". Algjört rugl.
Ég bjó á Akureyri öll mín menntaskólaár. Eftir að hafa búið í Reykjavík í alltof mörg ár þar á eftir og verandi í Danmörku; "paradís fjölskyldufólksins" núna finn ég alveg hvað mig langar mikið til að búa á Akureyri í framtíðinni. Fjölskyldan hefur auðvitað mikil áhrif á þá löngun og sérstaklega að maður stofnaði sjálfur fjölskyldu því maður vill að börnin manns fái að upplifa það sama og maður gerði sjálfur.
Vissulega er margt sem þarf að laga og það á við um alla staði. En það er gott að vita hvað þarf að laga, hafa trúnna á því að það sé hægt að laga það og láta það ekki vaxa sér í augum heldur bara að framkvæma.
Þó svo framtíðarplanið okkar sé ekki fullmótað og maður sér ekki beint í hendi sér að það sé endilega staða sem við, tölvunarfræðimasterinn og vefhönnuðurinn, getum gengið inn í, þá snýst lífið líka um að skapa sín eigin tækifæri.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.
/ Álit
Þetta á auðvitað sögulegar skýringar, sútunin, verksmiðjurnar þar sem nú er Glerártorg, frystihús og fleira í þeim dúr var stór hluti atvinnulífsins á Akureyri fyrir ótrúlega stuttum tíma síðan (20 ár).
Það sem að ég held að Björn Valur sé að skjóta á og er þetta eitthvað sem við rákumst á í náminu okkar á síðasta vetri var að þrátt fyrir mikla aukningu á námi á framhalds- og háskólastigi á svæðinu hefur vinnuaflið ekki "uppfærst" eins menn áttu von á. Þetta kemur mér náttúrulega ekki á óvart því til hvers að mennta fólk og geta svo ekki boðið því neitt nema flytja í burtu?
Sú saga gengur að Pétur Þorsteinsson hafi komið með þá hugmynd til Menntamálaráðuneytisins þegar hann var skólastjóri í grunnskólanum á Kópaskeri að stofna til keppni meðal skóla á landsbyggðinni um hver væri fyrstur til að mennta allt unga fólkið í burtu úr sveitarfélaginu. Hlutfall háskólamenntaðra hefur samt skánaðar (úr 17% í 24%) á síðustu tveimur árum.
Þetta snýst samt fyrst og fremst hvort sem það er fyrir vefhönnuðinn, tölvunarfræðimeistarann eða einhvern annan að búa sér til sín eigin tækifæri, annað hvort á staðnum eða t.d. með fjarvinnu.
Þetta með Öll lífsins gæði er auðvitað lítils virði ef það er ekki hægt að fá vinnu við hæfi. Svo má velta upp hver ber ábyrgð á því að það sé vinna við hæfi, er það sveitarfélagið, atvinnurekendur eða fólkið sjálft?
Svanhildur:
Þið eruð nú einmitt bæði að mennta ykkur í þesskonar störfum að maður myndi nú halda að það væri hægt að vinna þau hvaðan sem er af landinu. Held að þið gætuð vel unnið á Akureyri fyrir fyrirtæki í Reykjavík, eða jafnvel annars staðar.
það var ein bekkjarsystir mín að skoða launamálin á FSA og Lansanum, svona því við háskólahjúkkurnar erum jú farnar að huga að sumarvinnu. launamunurinn á þessum tveim stöðum er 30þús sagði hún, þ.e Lansinn borgar 3.árs hjúkrunarnemum 30þús kr meira en FSA. get ekki sagt að þetta hvetji mann til að sækja vinnu í heimabyggð.
...þá erum við jú að tala um grunnlaunin, allt vaktarálag á eftir að koma inní þetta, en það er hlutfall af grunnlaunum.
það er roooooosalega sorglegt..
Já það er leiðinlegt að það sé svona mikill munur á milli landssvæða í svona fámennu landi. Nú myndu höfuðborgarbúar myndu kannski segja að fasteignaverð sé hærra fyrir sunnan, en ef við td göngum út frá að launamismunur sem Baddy nefndi sé dæmigerður, (ég er viss um að það munar oftast meiru) ætli það sé 30.000 kr ódýrara að búa fyrir norðan á mánuði?
Ég hef einmitt verið að hugsa um svipaða hluti og þið Dagný, ég veit ekki um neina 'stofu' fyrir norðan sem ég hefði áhuga að vinna á, og spurning hvernig það sé að reyna að vinna sjálfstætt sem grafískur hönnuður á Akureyri? Gæti gengið, en ég hugsa að verkefnin séu ekki fjölbreytt. Sé fyrir mér Dagskránna með hryllingi...
En ef ég væri á heimleið fljótlega, myndi ég búa á Akyreyri. Komin með nóg af Rvk, þó hún eigi sér mjög margt jákvætt. Fjölskylda og vinir spila mikið inn í auðvitað.
Krakkar... það er okkar að rífa þetta pleis upp! ;o)
Helga Har.:
Húrra húrra áfram með ykkur unga fólk.
takk fyrir peppið mamma ;)
já ég spáði líka einmitt í þessu.. ætli það sé 30.000 kr ódýrara að búa á Akureyri; húsnæðisverð, hiti, rafmagn, tryggingar, leikskólagjöld.. maður reiknar þetta oft ekki inn í en ég held samt að það muni ekki 30.000kr á mánuði - 360.000kr á ári.. :/
Gunna: ég hef heldur engan áhuga á því að sækja í kúnna á norðurlandi, vinna hjá ásprent eða geimstofunni - ekki illa meint en það er bara takmarkað hvað menn geta mjólkað hvern annann.
Ég segi frekar, hver spurði hvar í heiminum forritið Skype var þróað.. var það ekki í Svíþjóð? Skiptir það einhverju máli? Auk þess hafa hugbúnaðarfyrirtækin Hexia og CCP ítrekað sagt að ef þeir fengju sömu tækifæri og aðrir (les. Alcoa) þá geta þeir komið upp vinnustöðvum hvar sem er í heiminum, líka á Húsavík. (var örugglega frétt á mbl.is sem ég skal grafa upp ef einhver rengir mig). Menn hafa bara alltaf verið að leita eftir verkamannavinnu fyrir fólkið sem er fyrir á stöðunum en ekki sérhæfðri tæknivinnu fyrir fólk sem hefði í huga að flytjast þangað.
Margföldunaráhrifin, vitiði! (úr Draumalandinu).
Allir vilja vera miðsvæðis... en hvað er miðsvæðis? er það ekki Smáralind? eða er það London - New York?
Tryggvi: Varðandi fjarvinnu þá hef ég reyndar ekki lesið verkefnið þitt en ítrekað hafa fjarvinnuverkefni klikkað (já.is og önnur símsvörunarbatterí sem dæmi) og ég veit það sjálf að það er meira en að segja það að ætla sér að vinna í fjarvinnu. Í raun þarf fólk að læra það að vinna í teymi í fjarvinnu, ekki bara sá sem er fjarvinnandi heldur líka hinir sem eru "nærvinnandi". Nú veit ég ekki hvers konar vinnubúðir fólk hefur farið í eða hvort einhver sér um það að þjálfa fólk í því. En það stekkur enginn / á enginn að stökkva út í það óhugsað.
Við gerðum eitt skemmtilegt verkefni í skólanum um daginn sem fjallaði um teymisvinnu, fjarvinnslu og menningarmun (cultural studies) þar sem okkur var skipt upp í mismunandi menningarhópa (fengum "menningarreglur" sem við áttum að fara eftir, hvort við vorum frjálslynd eða íhaldssöm, hugsuðum "lífrænt" eða rúðustrikað oþh) og svo áttum við að vinna að sama verkefni hvert á eftir öðru (mismunandi tímasvæði) og skilja eftir skilaboð á blaði (senda email) sem sagði hvernig við værum að vinna að hlutunum, til næsta hóps. Þetta var nokkuð abstract nálgun á viðfangsefninu og kannski erfitt að útskýra, en samvinnan, árekstrarnir og útkoman sýndi það að maður þarf að tileinka sér öðruvísi vinnubrögð í fjarvinnsluhópum og kannski er það ekki á færi allra. Amk þarf að læra það.
Þetta er eiginlega næstum orðin ný bloggfærsla.. en já, í stuttu máli: það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.
tek undir þessi síðustu orð. en það er eins með þetta og allt annað, breytingar geta tekið langan tíma, en það þarf alltaf að byrja á þeim til þess að eitthvað gerist. Ef ég hugsa þetta út frá skólanum sem ég er í, þar sem það er lítil útgáfa af litlu samfélagi þá þarf stundum að berjast hart fyrir breyttum áherslum, en það borgar sig yfirleitt. til þess að eitthvað gerist þurfa að vera aðilar sem eru tilbúnir til að (gæta) bæta hagsmuni fólks og gagnrýna það sem fyrir er og koma með tillögur að betri leiðum og ganga á eftir því að þær séu teknar til athugunar og þær breytingar gerðar sem þörf er á. þetta getur kostað mikla þrautseyju og ákveðni en sé farið rétt að og ekki gefist upp þá munu breytingarnar verða að lokum (vonandi). það sem mér finnst oft vanta er samstaða meðal fólks. ég hef tekið eftir því hér í skólanum að fólk getur tuðað yfir mörgum hlutum en þegar á hólminn er komið þá gugnar það og nennir ekki að gera neitt í neinu. en sem betur fer eru ekki allir þannig ...kannski þetta fólk sé við, framtíð norðurlandsins.
ég vil bara benda á að þeir kalla hólinn sinn Esju hérna. Það er ekki einu sinni skíðalyfta á honum.
Lengi lifi Hlíðarfjall... :)
heyr heyr
Nákvæmlega Baddý. Það er svo auðvelt að tauta í sínu horni.
En já, það væri frábært að hafa það svart á hvítu fyrir framan sig verðlagsmuninn á milli Höfuðb.sv. og Ak. Annaðhvort þá til að betur geta sætt sig við lægri laun i samanburði, eða þá að reka það framan í atvinnurekendur þegar þeir tala um láglaunasvæði til að komast upp með lægri laun. Það hljóta að vera til einhverjar samantektir á þessu?
er þetta ekki bara eitthvað sem rannsóknarstofnun háksólans ætti að athuga betur?!! tja maður spyr sig. þá sérstaklega skoða muninn á þeim atvinnuþáttum sem snúa að því sem í boði er hér í háskólanum...ætli menn séu ekki bara hræddir við þá niðurstöðu sem kæmi úr þessu!

