úr mér allur vindur
Já, það er úr mér allur vindur. Í dag skiluðum við lokaverkefni annarinnar í skólanum þrátt fyrir að lokaskil séu ekki fyrr en á morgun og ég held að það hafi gengið alveg frá mér. Ég var í 4 manna hópi með einum dana, stelpu frá eistlandi og annarri frá lettlandi, mjög hressir krakkar nema bara fjári ungir .. það fær mann bara til að yngjast aðeins upp, er það ekki? Ekki veitir af.
Eftir skóla fór ég aðeins í Mollið sem er rétt við hliðina á skólanum hans Óla (óréttlátt, mér finnst að það eigi að vera hjá mínum skóla...) og það var ekki að hjálpa hausverknum. Heima var sonurinn með ragettu í rassinum (sennilega af því mig langaði svo mikið í ís og lét það eftir mér/okkur).
Núna ætla ég að setjast upp í sófa með bókina og horfa á eitthvað skemmtilegt.
Og sofa svo út á morgun.
Í morgun fékk ég að sofa út þar sem Danni fór með pabba sínum í hinn víðfræga og sívinsæla Bambagarð. Ég held að þeir ætli að byggja sumarbústað þar.
Það var nefnilega ágætt að sofa lengur því hausinn á mér er fullur af einhverri pest, fann það í gærkvöldi og dagurinn í dag er ekki búinn að vera neitt sérstaklega spes. Nema að þessir yndislegu drengir mínir fóru í búðina og keyptu fullt af súkkulaði handa mér... og te. Það bætir ástandið aðeins.
Núna sit ég hérna ein á meðan þeir fóru í fótboltaafmæli. Nágranni okkar, mikil fótboltahetja, er að halda upp á 3 ára afmælið sitt og þar sem við fengum fótboltaboðskort fór Danni í Englandsbúningnum sínum og fótboltaskónum.
MU-Che var líka að byrja þannig að pabbinn skemmtir sér örugglega ágætlega líka.
helgarfylleríið
Í staðinn fyrir að fara á djammið um helgina mæli ég með því brása bara netið.. maður fær reyndar hausverk af því líka en kannski ekki eins mikinn..
...hvernig fórum við eiginlega að áður en þetta kom?..
framhald á: akureyri, best í heimi?
Það er gaman að fá þessa umræðu af stað og það væri gaman að halda henni áfram, ég setti inn nýtt álit á færsluna: Akureyri - best í heimi. Í staðin fyrir að setja þetta nýja álit inn sem nýja færslu þá væri bara betra að halda áfram þar sem frá var horfið.
Ég vildi bara svona benda á það. Annars ekkert merkilegt títt. Engar fréttir eru góðar fréttir.. right?
zzZz
ég er geðveikt þreytt í dag. annaðhvort þarf ég kók eða lúr.
akureyri - best í heimi
Ég las þetta í morgun:Frétt - Segir koma á óvart hversu menntunarstig á Eyjafjarðarsvæðinu sé lágt - og svo las Óli þetta líka í skólanum og sendi mér í pósti í morgun.. greinilega bæði að hugsa það sama.
Ég hef aldrei botnað í þessu með "þekkt láglaunasvæði". Ég hef heyrt í fólki sætta sig við lægri laun á Akureyri en í Reykjavík vegna þess að það "sé á láglaunasvæði". Algjört rugl.
Ég bjó á Akureyri öll mín menntaskólaár. Eftir að hafa búið í Reykjavík í alltof mörg ár þar á eftir og verandi í Danmörku; "paradís fjölskyldufólksins" núna finn ég alveg hvað mig langar mikið til að búa á Akureyri í framtíðinni. Fjölskyldan hefur auðvitað mikil áhrif á þá löngun og sérstaklega að maður stofnaði sjálfur fjölskyldu því maður vill að börnin manns fái að upplifa það sama og maður gerði sjálfur.
Vissulega er margt sem þarf að laga og það á við um alla staði. En það er gott að vita hvað þarf að laga, hafa trúnna á því að það sé hægt að laga það og láta það ekki vaxa sér í augum heldur bara að framkvæma.
Þó svo framtíðarplanið okkar sé ekki fullmótað og maður sér ekki beint í hendi sér að það sé endilega staða sem við, tölvunarfræðimasterinn og vefhönnuðurinn, getum gengið inn í, þá snýst lífið líka um að skapa sín eigin tækifæri.
aðalfundur 2006
Í kvöld var haldinn aðalfundur pjúsarafélagins að mér fjarstaddri. Pjúsarar láta ekki vegalengdir á sig fá og í raun var ég viðstödd fundinn lengi vel, þar til tæknilegu unaðssemdirnar gáfu sig.
Ýmislegt var samþykkt, ýmis mál komu upp en félagsmenn eru sammála að fundurinn hafi verið innihaldsríkur og afkastamikill, sérstaklega á eftirréttina.
jólaundirbúningur

Við förum ekki varhluta af global warming hérna í Mörkinni. Það er svolítið erfitt að setja sig í jólagírinn þegar grasið sprettur grænt sem aldrei fyrr og hitinn fer í tveggjastafa tölu yfir daginn (15 gráður í dag, takk fyrir!). Ég ætla samt að reyna. Mér skilst að það sé aðeins ljósara yfir heima á frónni og eitthvað aðeins kaldara en það er bara í takt við dagatalið held ég.
Ég var búin að setja það markmið að klára jólainnkaup, innpökkun og jólakortaskrif fyrir mánaðarmótin. Þá þýðir ekkert annað en að vera skipulagður. Svo fer allt í kassa með skipi og familían sér um að dreifa og koma á pósthús. Dásamlegt.
Í dag versluðum við 7 (sjö) jólagjafir, er búin að hanna pakkaútlitið og það er með (surprise surprise) nokkuð dönsku ívafi. Einnig kom myndin á kortið í hús í vikunni, jólakortalistinn verður örlítið uppfærður frá því í fyrra - ef einhver vill kort sem fékk ekki í fyrra eða einhver sem fékk í fyrra og vill ekki aftur fá jólakort þá gefi viðkomandi sig fram við mig - og já, Áslaug.. þú fékkst aldrei kortið í fyrra því ég fékk það endursent frá póstinum seinnihluta janúar, spurning hvort ég sendi þér tvö núna ;)
- og við getum hafist handa við að skrifa. Þá vantar bara appelsínið og maltið, piparkökurnar og jólalögin,.. já og snjóinn.
nýtt stöff
Nýjungarnar eru allsstaðar sem maður lítur:
ferðahelgi
Síðustu dagar eru búnir að vera magnaðir, tengdó komu á fimmtudaginn og Danni fékk þriggja mánaða skammt af dekri á fjórum dögum, allir höfðu voða gott af því.
Í gær renndum við á fáknum til höfuðborgarinnar Kaupmannahafnar þar sem við fórum út að borða og gistum á íslensku gistiheimili, en þau eru víst ófá á svæðinu. Í morgun keyrðum við þeim út á flugvöll, kíktum svo aðeins á strikið, í nokkrar verslanir og niður á Nýhöfn en lögðum af stað aftur "vestur" uppúr hádegi. Á leiðinni lentum við í hávaðaroki og hífandi hagléli, þannig að við óttuðumst um lakkið á bílnum um tíma. Brúin yfir stórabelti var líka ekkert lamb að leika við í þessum 20metrum á sek en fákurinn klauf vindinn eins og hann hefði aldrei gert annað og skilaði okkur heim um kaffileytið. Eins gott að Blönduóslöggan leynist ekki á hraðbrautinni.
Gestirnir okkar fengu hins vegar töluvert lengra ferðalag sem er ekki lokið enn. Þau áttu semsagt að fara í loftið á leið til Akureyrar kl 11:25 en fóru af stað um kl 17, og þurfa þar að auki að lenda í Keflavík og keyra í rútu norður. Ömurlegur endir á annars góðu ferðalagi.
veður
Þegar maður hefur lítið að segja þá er ágætt að tala bara um veðrið.
Í gær snjóaði þannig að eftir tók, ekkert sérstaklega mikið samt, nóg til að sjá spor eftir sig. Það var heldur ekkert mikið rok og ekkert ógurlega kalt. Bara árstíðin að minna á sig, veturinn nálgast. Ég fór í skólann í gær en kennarinn kom ekki (vegna veikinda barns, ekki vegna snjókomunnar) svo ég fór heim aftur.
Hins vegar varð ég svolítið skelkuð með eitt, uppúr hádegi sá ég á netinu að brúin yfir Stórabelti var lokuð og einnig höfðu siglingar með ferjunni sem siglir milli Árósa og Sjálands, fallið niður. Ef þetta er svona eftir smá ofankomu í október, hvernig verður það þá að morgni 22. desember þegar við ætlum að keyra til Kastrup og fljúga til Íslands?
1


RSS veita