svona er samkeppni á bensínmarkaði

Það er frekar skondin bensínstefna hérna. Í morgun þegar ég keyrði af stað með Danna sá ég að bensínljósið var farið að loga. Við reynum yfirleitt að versla bensín á laugardagsmorgnum því þá er það ódýrast. En af því ljósið var farið að loga kíkti ég á verðið á skiltinu hjá HydroTexaco sem er hérna niðri á horni og það var 9.19kr. Af því ég var að flýta mér í morgun ákvað ég að stoppa ekki, enda var ljósið bara nýbyrjað að loga. Þegar ég kom svo heim uppúr hádegi var verðið komið í 9.29 ddk (106,84 isk), svo að ég ákvað að fara ekki alveg strax. Svo núna áðan þegar ég sótti Danna var bensínljósið að verða aðeins frekara þannig að ég kíkti á skiltið og viti menn; 8.56 ddk (98.44 isk) - sem þýðir 8.4 isk lækkun á einu eftirmiðdegi.

Maður getur varla séð fyrir sér að íslensku olíufélögin lækki verð án þess að senda frá sér fréttatilkynningu með tveggja daga fyrirvara, hvað þá að lækka svona mikið án þess að það sé röð út á götu.

Skemmtilegt. Annars breytist aksturinn okkar talsvert í næstu viku þegar Danni byrjar hjá nýrri dagmömmu, sem býr í stórkostlega girnilegri hjólafjarlægð frá okkur.


Viðbót: Í morgun fyrir kl 9 þegar við skutluðum Danna var verðið ennþá 8.56 þannig að við hugsuðum okkur gott til glóðarinnar og ætluðum að taka bensín í bakaleiðinni - en þá - viti menn, verðið orðið 9.56 dkk (110 isk) ! :/


Fimmtudagur 26. október 2006 kl. 14:56
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / samfélag. Þar eru 71 færslur. / ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

baddy sys:

það er bara fullt djobb fyrir einn mann að breyta skiltinu yfir daginn...jiminn..

27.10.06 18:02


Siffi:

'Það er gott að bú'í Danmörku'

27.10.06 18:21