skólinn og lífið

Ég er alltaf komin snemma heim úr skólanum og ég elska það :) Núna er ég reyndar að skrópa í HTML tíma en þegar maður hefur talað html í átta ár þá nennir maður ekki að sitja undir þessu einfalda (call me miss cocky..). Óli er ennþá í skólanum og var á bílnum þannig að í staðinn fyrir að sækja bílinn og sækja svo Óla á eftir þá ákvað ég að taka bara strætó heim. Það er reyndar enginn strætó sem fer alla leiðina þannig að ég þurfti að skipta á miðri leið.
Það er gaman að taka strætó hérna - miðað við RVK þá eru sennilega öll strætókerfi skemmtileg. Hér fer maður inn að aftan, stimplar miðann sinn (eða ekki) og svo út að framan. Hérna les líka vagnstjórinn upp næstu götur/stoppistöðvar þannig að hann virkar ekki eins úldinn og önugur maður hefur vanist áður.
Áður en ég fór heim kom ég við í bókabúðinni í skólanum og keypti markaðsfræðibókina sem við erum að lesa núna, það er nú kominn október og kominn tími til að lesa skólabækurnar :) Hún var hins vegar frekar þung og seig í þegar ég var að bíða eftir næsta strætó sem tók heila eilífð að því virtist. Það var nefnilega við eina stærstu götuna hérna, Viborgvej, og akkúrat á 2km kafla þar sem verið er að breikka hana - þeir eru búnir að vera að vinna í þessu síðan áður en við komum hingað en með sínum löngu hádegishléum, hætta-að-vinna-klukkan-fjögur stefnu og engri yfirvinnu þá held ég að þeir verði örugglega í því að breikka götuna allan tíman sem við verðum hérna. Allavega sér maður engan mun frá degi til dags.
Ásamt því að kaupa markaðsfræðibókina keypti ég líka aðra bók sem mig hefur langað í lengi; Web Redesign eftir Kelly Goto sem var með magnaðan fyrirlestur á vefráðstefnunni heima í apríl. Þannig að það verður kannski svolítill tími þar til ég kíki í markaðsfræðibókina ;)


Fimmtudagur 05. október 2006 kl. 10:29
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / netið. Þar eru 107 færslur. / skólinn. Þar eru 11 færslur.

/ Álit

hadda:

HAhahah fyndið, var að leggja þessa bók frá mér og fór einn bloggrúnt fyrir svefninn, þeas Kelly Goto bókina

Bið að heilsa til Árósa og vona að þið séuð öll hress.
Kv. Hadda

11.10.06 00:06