< margmiðlaðar systur /
Heim
/ á ferðinni >
mánudagssarpur
Á mánudegi á maður ekkert að vera að nenna að gera eitthvað af viti, það verður allt hvort sem er svo mikil sósa að það er best að stara bara út í loftið. Eða skoða þetta..
Ef þú ert of jákvæður út í lífið og vantar leið til að mála heiminn aðeins svartari litum þá er bloggið hans Sindra Eldon alveg málið. Einnig - fullt af nýjum allskonar orðum svona misfallegum en hressandi.eHub hjá Emily Chang er áhugaverður staður til að finna það nýjasta í net-tækniheiminum. Áhugavert fyrir suma allavega.Squidfingers hafa fengið smá andlitslyftingu. Ég hef alltaf verið svo veik fyrir pixelmystrunum en eiginlega allt annað á þeirri síðu hrífur mig líkaEn talandi um mynstur þá er Blik með veggfóður sem ég væri alveg til í að stara á, á mánudögum í framtíðinniXRTIONS er líka skemmtilegt portfolio sem er "oplevelse" að fletta í gegnumog af því ég á nýjan makka verð ég að deila nokkrum áhugaverðum mac stöðum sem ég er búin að hanga á síðustu daga: macgears // non stop mac og forrit: NetNewsWire // AdiumX // CoreDuoTemp
Mánudagur 09. október 2006 kl. 12:30
Flokkað sem
netið. Þar eru 107 færslur.
/ Álit
baddy:
það er greinilegt að nýji makkinn virkar vel í að sörfa um síðurnar... ;)
12.10.06 22:24
Hanna Sys:
Jæja systir. Ég er búin að kíkja inná allar þessar síður - enda haft viku til! Er ekkert merkilegt að gera hjá þér? Langar í fréttir frá Danaveldinu! :D
Svo væri nú gaman að spjalla við Daniel aftur í gegnum tölvuna! ;)
P.s. Ég er búin að kaupa klukkurnar!! Komnar uppá skenk hjá okkur. :)
17.10.06 05:51
dagný:
gott hjá þér að kíkja á þetta... reyndar er ekkert merkilegt að gerast... danni segir frá því öllu á sinni síðu, ég vil ekki stela þrumunni hans ;)
17.10.06 13:01