landið mitt

Mér er ekki rótt, ég hugsa um það allan daginn hvað allt er að fara til andskotans á Íslandinu góða.
Þeim sem stjórna landinu svona æðislega vel finnst það meira virði að skjóta verðlausa hvali heldur en að reikna út hvað það kostar í raun að halda úti þessum veiðum áður en það var farið af stað í skyndi.
Ég er samt enginn sérstakur hvalafriðunarsinni, miklu frekar heilbrigðar-skynsemis-sinni. Af hverju að eyðileggja allt sem var búið að byggja upp? Hvernig fittar þetta inn í heildarmyndina?
Áhugaverður pistill á vísi í þessu samhengi, hver er raunverulega ástæðan fyrir þessarri ákvörðun.

Það hefði verið áhugavert að sjá hversu margir þeirra sem stjórna landinu svona vel kæmu til með að mæta á Haustþingið "Ísland á teikniborðinu", sem fer fram næstu helgi, en því miður kemst ég ekki þangað til að verða vitni að því. Það hefði verið í anda haustþingsins að podcasta því þannig að allir geti fylgst með, en líklega þarf ég að fylgjast með fréttum eftirá.

Líklega þarf ég að fara að útbúa sérstakt blogg undir þetta raus um pólitík eða samfélagsmál eða hvað maður vill kalla það, til að hlífa fjölskyldunni við þessu.

Ég bara kem því ekki út úr hausnum á mér að fólk skuli taka svona vitlausar ákvarðanir um það sem skiptir svona miklu máli.


Miðvikudagur 25. október 2006 kl. 21:56
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / samfélag. Þar eru 71 færslur.

/ Álit

Áslaug:

Og svo er það svo merkilegt að hvorki skoðanir þeirra sem búa í 101rvk eða í útlöndum telja- , hvort sem heldur varðandi virkjanaframkvæmdir, hvalveiðar eða flestu því sem kemur að stjórnun eða ákvarðanatöku íslenskra pólitíkusra- í það minsta ekki ef þessar skoðanir eru gagnrýni. við erum jú úr öllum tengslum við íslenskt samfélag og vitum ekkert um hvað við erum að tala.

26.10.06 09:27


Dagný:

nákvæmlega, það virðist ekki vera hlustað á neina gagnrýni - jafnvel þó fólk eigi lífið undir, eins og í þessari ótrúlegu grein á mbl.is -> http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1108776

26.10.06 14:33


guggiZH:

ég er svo gáttaður á þessu öllu saman að ég er bara ekki viss um að ég jafni mig. fólk er svo víðáttuheimskt að ég held að ég setjist bara að í fílabeinsturninum, það tekur því ekki að koma niður.

27.10.06 15:53


Dagný:

nei sko.. "Vegna áskorana frá félögum okkar á landsbyggðinni hefur verið ákveðið að hafa beina útsendingu frá haustþingi Framtíðarlandsins á netinu. Hægt verður að tengjast útsendingunni hér þegar þingið hefst kl. 10 í fyrramálið. Það stendur til kl. 16. "
http://www.framtidarlandid.is/news.asp

frábært!

Guggi.. já, við verðum bara að kallast á milli úr háhýsunum.

28.10.06 17:42