jóla...
Við erum komin í jólagírinn hérna - nei ekki jólaskapið, heldur er kominn tími til að skipuleggja hvernig á að eyða jólafríinu. Óli er kominn í frí 18. des en skólinn minn ætlar að halda okkur út 21. des sem er ákaflega ójólalegt af þeim. Skólinn byrjar svo aftur strax 2. janúar, en að öllum líkindum verða fyrstu dagarnir ekki mjög merkilegir.
Við erum búin að ræða það fram og aftur að við verðum eiginlega að fara og vera heima um jólin. Þetta er náttúrulega fínt tækifæri að prófa að halda jól einusinni í útlöndum en einhvernveginn er nýungagirnin ekki það mikil, þegar maður veit hvað hinn kosturinn er frábær. Þetta eru líka svo merkilegur tími fyrir lítinn strák að maður vill að hann fái að njóta hans með ömmu sinni og afa og öllum hinum líka.
Ferðalagið er hins vegar langt; tæpra 4 tíma keyrsla til köben, svo 3 tíma flug og svo þarf að koma sér norður. Líklega kostar þetta ferðalag allt rúman 100þ kall, eða 10þ kall per dag í jólafríi! Sem betur fer eigum við gott fólk sem vill fá okkur heim, annars væri þetta ekki til umræðu :)
Flokkað sem heimilið. Þar eru 57 færslur.
/ Álit
Þið eruð heppin!
Hér er kennt út þorláksmessu -og mætingaskylda I might add.
Líkl myndum við þurfa 3 flug til að komast til okkar átthaga og þar sem innanlandsflug á Íslandi er dýrara en t.d. Zürich-köben fer maður virkilega að spyrja sig... Reyndar eyddum við jólunum hér í fyrra og það var mjög góð tilbreyting. En mig er farið að langa heiftarlega í hangikjöt!!
Já þið VERÐIÐ að koma heim um jólin!! Það gengur nú ekki annað. ;) VIð viljum alveg endilega fá ykkur heim! :D
Hæ systa. Bara láta þig vita að nýja tölvan er komin í hús! Hún er ekkert smá GEGGJUÐ!
Þakkaðu Óla kærlega fyrir hjálpina. Og segðu Óla að þakka þér kærlega fyrir hjálpina frá mér ;)
Love yah!
:)
Já vá.. jólin fara bara alveg að koma...



RSS veita