í beinni frá Nordica
Er að hlusta á ráðstefnu framtíðarlandsins. Ákaflega fróðlegt.
Flokkað sem samfélag. Þar eru 71 færslur.
/ Álit
Víkingur:
Úr grein Vésteins Lúðvíkssonar “Orwell í Bangladesh og Auden í Straumsvík”, Lesbók Morgunblaðsis, 4. nóvember 2006, bls. 7:
"... Þegar gefið var leyfi fyrir álverksmiðju í Straumsvík á sjöunda áratugnum vissum við ekki það sem við vitum núna. Þá nægði
okkur sú nytjahugsun að renna þyrfti fleiri stoðum undir einhæft hagkerfi. Fyrir eða eftir Ríóráðstefnuna, 1992, vissum við (eða
áttum að vita) að umhyggjan fyrir eigin efnahag nægði ekki sem réttlæting fyrir frekari losun gróðurhúsalofts. Samt hefur þetta
verið megináherslan í málflutningi þeirra sem talað hafa fyrir aukinni stóriðju. Þetta er gott fyrir OKKUR. Þetta er gott fyrir ákveðin
byggðarlög, gott fyrir „atvinnustigið“, gott fyrir hagvöxtinn, gott fyrir almenna velsæld, gott fyrir ÍSLAND. Eigingirnin í þessu sjónarmiði (sem er gott dæmi um skilningsvana nytjahugsun) hefur með árunum orðið pínlega ber, ekki síst með tilliti til þess að landið er langt frá því að vera í hópi þeirra fátækustu.”

