á ferðinni
Við erum búin að bóka heimferð um jólin enda ekki hægt þegar maður fær ferðalagið í jólagjöf. Þetta verður mikið gaman!
Það er bara eitt sem böggar mig afskaplega mikið, af hverju getur innanlandsflugvöllurinn ekki verið í Keflavík? Hvað er málið með að þurfa að taka flybus til UMFERÐAmiðstöðvarinnar og þurfa svo að krækja fyrir flugvöllinn í vatnsmýrinni með leigubíl? (sem b.t.w. er örugglega ekki með barnastól!) til að komast í flugstöðvarskúrinn. Hver skipuleggur þetta eiginlega?
Annars er Árósaflugvöllur, sem er líka alþjóðaflugvöllur, í um klst akstri frá borginni hér og ég heyri ekki marga kvarta yfir þeirri fjarlægð, né óskir um að fá flugbraut upp við Skejby spítalann, þó það sé laust tún þar!.
Við Danni erum í haustfríi núna (Efterårsferie, snilldar fyrirbæri!) og tókum strætóinn niður í bæ í morgun. Í vagninum var líka skemmtilega undarlegur, vellyktandi og hárprúður náungi, með stóran hund í bláum ikea poka sem virtist vera hundabælið. Hundurinn var alveg spakur þarna í pokanum enda greinilega ýmsu vanur af eiganda sínum, sem tók sig til á miðri leið og bjó sér til eina jónu á leiðinni, ekkert stressaður á því. Handverkið var stórgott og náunginn gæti örugglega fengið fínt djobb hjá Castro ef hann fengi borgað fyrir að hafa hund með sér þar eins og hér .
Í miðbænum var líf og fjör og við versluðum sitthvað sem verður opinberað á laugardaginn en þá á heimilisfaðirinn afmæli. Á heimleiðinni sofnaði Danni í kerrunni sinni og sefur ennþá hérna fyrir utan.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / hönnun. Þar eru 162 færslur.
/ Álit
Helga Har.:
Hringdu bara í Habba frænda 892-5788 hann er með barnabílstól. hann sækir ykkur örugglega til Keflavíkur þó hann megi það ekki sem leigubíll.
getiðiggi lent beint á Akureyri? eru beinu flugin frá Köben hætt þá?
Þið kannski fljúgið beint frá Árósum en ekki Köben!?
Já... miðað við að írland er ekki svo langt fra íslandi þannig séð, þá er ótrulega mikið moð að komast heim. Flug til London, flug til Kef, rúta til RVK og annað hvort flug eða 4,5klst akstur heim...
erfitt líf að vera svona flakkari! ;)
flugið með IE frá køben til Ak hættir 3. des :S tengdó ætla að koma með því núna í nóvember, ef það væri ennþá um jólin væri þetta lítið mál.
reyndar væri koben > kef > ak mesta snilldin, með klst stoppi í fríhöfninni ;)
in my dreams :)

