í beinni frá Nordica

Er að hlusta á ráðstefnu framtíðarlandsins. Ákaflega fróðlegt.

Sunnudagur 29. október 2006 kl. 12:10 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem samfélag / 1

svona er samkeppni á bensínmarkaði

Það er frekar skondin bensínstefna hérna. Í morgun þegar ég keyrði af stað með Danna sá ég að bensínljósið var farið að loga. Við reynum yfirleitt að versla bensín á laugardagsmorgnum því þá er það ódýrast. En af því ljósið var farið að loga kíkti ég á verðið á skiltinu hjá HydroTexaco sem er hérna niðri á horni og það var 9.19kr. Af því ég var að flýta mér í morgun ákvað ég að stoppa ekki, enda var ljósið bara nýbyrjað að loga. Þegar ég kom svo heim uppúr hádegi var verðið komið í 9.29 ddk (106,84 isk), svo að ég ákvað að fara ekki alveg strax. Svo núna áðan þegar ég sótti Danna var bensínljósið að verða aðeins frekara þannig að ég kíkti á skiltið og viti menn; 8.56 ddk (98.44 isk) - sem þýðir 8.4 isk lækkun á einu eftirmiðdegi.

Maður getur varla séð fyrir sér að íslensku olíufélögin lækki verð án þess að senda frá sér fréttatilkynningu með tveggja daga fyrirvara, hvað þá að lækka svona mikið án þess að það sé röð út á götu.

Skemmtilegt. Annars breytist aksturinn okkar talsvert í næstu viku þegar Danni byrjar hjá nýrri dagmömmu, sem býr í stórkostlega girnilegri hjólafjarlægð frá okkur.


Viðbót: Í morgun fyrir kl 9 þegar við skutluðum Danna var verðið ennþá 8.56 þannig að við hugsuðum okkur gott til glóðarinnar og ætluðum að taka bensín í bakaleiðinni - en þá - viti menn, verðið orðið 9.56 dkk (110 isk) ! :/

Fimmtudagur 26. október 2006 kl. 14:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / samfélag / ýmislegt / 2

áts..

ég er með einhverja þá mestu strengi sem sögur fara af núna, og það að sitja við tölvuna fær mann bara til þess að stirðna upp...úff. Stigarnir hérna úti eru heldur ekki búnir að vera uppáhalds í dag.
Kannski maður hafi þá tekið á því í gær eftir allt saman.

Fimmtudagur 26. október 2006 kl. 14:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

landið mitt

Mér er ekki rótt, ég hugsa um það allan daginn hvað allt er að fara til andskotans á Íslandinu góða.
Þeim sem stjórna landinu svona æðislega vel finnst það meira virði að skjóta verðlausa hvali heldur en að reikna út hvað það kostar í raun að halda úti þessum veiðum áður en það var farið af stað í skyndi.
Ég er samt enginn sérstakur hvalafriðunarsinni, miklu frekar heilbrigðar-skynsemis-sinni. Af hverju að eyðileggja allt sem var búið að byggja upp? Hvernig fittar þetta inn í heildarmyndina?
Áhugaverður pistill á vísi í þessu samhengi, hver er raunverulega ástæðan fyrir þessarri ákvörðun.

Það hefði verið áhugavert að sjá hversu margir þeirra sem stjórna landinu svona vel kæmu til með að mæta á Haustþingið "Ísland á teikniborðinu", sem fer fram næstu helgi, en því miður kemst ég ekki þangað til að verða vitni að því. Það hefði verið í anda haustþingsins að podcasta því þannig að allir geti fylgst með, en líklega þarf ég að fylgjast með fréttum eftirá.

Líklega þarf ég að fara að útbúa sérstakt blogg undir þetta raus um pólitík eða samfélagsmál eða hvað maður vill kalla það, til að hlífa fjölskyldunni við þessu.

Ég bara kem því ekki út úr hausnum á mér að fólk skuli taka svona vitlausar ákvarðanir um það sem skiptir svona miklu máli.

Miðvikudagur 25. október 2006 kl. 21:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / samfélag / 4

skvabb skvabb..

síðan við komum hingað út hef ég verið eiginlega óstöðvandi sukkari, nammið er svo ódýrt og goooott og skilagjaldið líka svo hátt á glerflöskunum þannig að það borgar sig eiginlega að kaupa kassa af kóki í gleri. :)
Það er eins og það séu tveir gaurar sem sitji á herðunum á mér og stjórni mér; púkinn er alveg sveittur við að hrósa mér og hvetja mig áfram enda orðinn spikfeitur sjálfur. Hvíti engillinn reynir að toga í mig og fá mig til að borða banana og drekka vatn, hann fékk mig meira að segja til að kaupa baðvigt um daginn og svei mér ef það virkar ekki aðeins... En súkkulaði er svo létt og mælist varla, er það ekki?
Í morgun datt Óla í hug að fara út að hlaupa í hádeginu, við erum bæði í fríi í skólanum í dag (hann að gera verkefni og ég á lesdag) þannig að jú, eftir hádegismat fundum við hlaupaskóna og skokkuðum út. Auðvitað byrjar maður vel, svona ef einhver nágrannanna skyldi nú vera heima.. en eftir ca 10 metra var ég komin með hlaupasting og beinhimnubólgu og mjólkursýru í vöðvum og.. og... en þessi sadisti sem ég var að hlaupa með (sem NótaBene er búinn að vera í nammibanni síðan í maí!) skokkaði bara í kringum mig og lamdi mig áfram.
Ég viðurkenni það, það var mjög fallegt veður til þess að hlaupa úti, þægilega kalt (14°c), enginn vindur að ráði, sól, mjúkur jarðvegur, skógur í kringum göngustíginn.. allt eins og það á að vera. Nema formið, það vantaði.
Sjitt hvað þetta var erfitt.
Ég fór semsagt styttri leiðina heim og 10 min seinna kom hr hlaupagikkur móður og másandi og eftir teygjur og beygjur þá skoraði hann á mig í armbeygjukeppni. Hann tók 50 á meðan ég tók.. ekki svo margar.
En það gengur bara betur næst, hvenær sem það verður.

Miðvikudagur 25. október 2006 kl. 12:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / 0

gerðu eitthvað brjálæðislegt

Ég rakst á eiginlega alveg ótrúlega síðu: Do Something Amazing þar sem bandaríski flugherinn er að reyna að fá fleiri til liðs við sig (wonder why) og það er augljóst að það er verið að höfða til counterstrike / battlefield tölvuleikjanördanna því þetta er eins og maður geti farið og tekið þátt í alvöru stríðstölvuleik.
Yeah!.. :/

Laugardagur 21. október 2006 kl. 21:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 1

heimildamyndasjúklingur

Inni á milli Lost, despó, greys, southpark og family guy horfi ég á undarlegar heimildarmyndir. Um daginn sá ég Loose Change, svo aðeins síðar 911 Mysteries sem er enn ein heimildarmyndin sem er að reyna að draga fram í dagsljósið að raunverulegu hryðjuverkamennirnir sem ollu árásunum á World Trade Center voru bandarísk yfirvöld sjálf og svívirðilegir peningamenn við þeirra hlið. Bókstaflega. Ummerkin og sönnunargögnin eru þannig að þessar vangaveltur eru hættar að vera samsæriskenningar og eru orðnar að undrun yfir því að ekkert skuli vera að gerast í því að fá botn í þetta mál.
Og áfram heldur stríðið í Írak.

Önnur mynd sem ég horfði á í kvöld heitir An Inconvenient Truth og er með Al Gore í aðalhlutverki. Ókei.. Al Gore, djí.. leiðinlegur gaur, hélt ég. En hann kemur á óvart. Þó svo myndin sé ekkert sérstakt skemmtiefni (annað en trailerinn heldur fram) þá heldur hann manni við efnið (hefði reyndar mátt klippa nokkrar langdregnar og óþarfa senur úr) og skilur mann eftir frekar mikið hugsi.
Myndin fjallar um gróðurhúsaáhrifin og þá framtíð sem við eigum í vændum ef hlutirnir fara ekki að breytast.
Þetta er ekki eitthvað grín sem er hægt að hunsa eða ætla sér að hugsa um einhverntíman seinna, maður þarf allavega að byrja á því að sjá þessa mynd.
og hjóla meira.
og slökkva ljósin og fara að sofa.

Föstudagur 20. október 2006 kl. 23:00 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / video / 0

góð hugmynd

Mér finnst þetta alltaf jafn góð hugmynd:Mbl.is - Frétt - Fátækum börnum færðar gjafir í skókössum.

Miðvikudagur 18. október 2006 kl. 14:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 1

á ferðinni

Við erum búin að bóka heimferð um jólin enda ekki hægt þegar maður fær ferðalagið í jólagjöf. Þetta verður mikið gaman! Það er bara eitt sem böggar mig afskaplega mikið, af hverju getur innanlandsflugvöllurinn ekki verið í Keflavík? Hvað er málið með að þurfa að taka flybus til UMFERÐAmiðstöðvarinnar og þurfa svo að krækja fyrir flugvöllinn í vatnsmýrinni með leigubíl? (sem b.t.w. er örugglega ekki með barnastól!) til að komast í flugstöðvarskúrinn. Hver skipuleggur þetta eiginlega? Annars er Árósaflugvöllur, sem er líka alþjóðaflugvöllur, í um klst akstri frá borginni hér og ég heyri ekki marga kvarta yfir þeirri fjarlægð, né óskir um að fá flugbraut upp við Skejby spítalann, þó það sé laust tún þar!.
Við Danni erum í haustfríi núna (Efterårsferie, snilldar fyrirbæri!) og tókum strætóinn niður í bæ í morgun. Í vagninum var líka skemmtilega undarlegur, vellyktandi og hárprúður náungi, með stóran hund í bláum ikea poka sem virtist vera hundabælið. Hundurinn var alveg spakur þarna í pokanum enda greinilega ýmsu vanur af eiganda sínum, sem tók sig til á miðri leið og bjó sér til eina jónu á leiðinni, ekkert stressaður á því. Handverkið var stórgott og náunginn gæti örugglega fengið fínt djobb hjá Castro ef hann fengi borgað fyrir að hafa hund með sér þar eins og hér . Í miðbænum var líf og fjör og við versluðum sitthvað sem verður opinberað á laugardaginn en þá á heimilisfaðirinn afmæli. Á heimleiðinni sofnaði Danni í kerrunni sinni og sefur ennþá hérna fyrir utan.

Þriðjudagur 17. október 2006 kl. 13:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / hönnun / 4

mánudagssarpur

Á mánudegi á maður ekkert að vera að nenna að gera eitthvað af viti, það verður allt hvort sem er svo mikil sósa að það er best að stara bara út í loftið. Eða skoða þetta..


  • Ef þú ert of jákvæður út í lífið og vantar leið til að mála heiminn aðeins svartari litum þá er bloggið hans Sindra Eldon alveg málið. Einnig - fullt af nýjum allskonar orðum svona misfallegum en hressandi.
  • eHub hjá Emily Chang er áhugaverður staður til að finna það nýjasta í net-tækniheiminum. Áhugavert fyrir suma allavega.
  • Squidfingers hafa fengið smá andlitslyftingu. Ég hef alltaf verið svo veik fyrir pixelmystrunum en eiginlega allt annað á þeirri síðu hrífur mig líka
  • En talandi um mynstur þá er Blik með veggfóður sem ég væri alveg til í að stara á, á mánudögum í framtíðinni
  • XRTIONS er líka skemmtilegt portfolio sem er "oplevelse" að fletta í gegnum
  • og af því ég á nýjan makka verð ég að deila nokkrum áhugaverðum mac stöðum sem ég er búin að hanga á síðustu daga: macgears // non stop mac og forrit: NetNewsWire // AdiumX // CoreDuoTemp
  • Mánudagur 09. október 2006 kl. 12:30 / Varanleg vefslóð
    Flokkað sem netið / 3

    margmiðlaðar systur

    Í kvöld spjallaði ég við Hönnu systursem er stödd í californiu, í gegnum video á skype á sama tíma og við Hanna spjölluðum líka á skype við Baddý systursem var að stjórna útvarpsþætti á Akureyri og fór þar með nýjasta gossið frá Hollywood og kóngafólkinu í Danmörku, af því hún fékk það allt beint í æð.
    Ég veit ekki hvaðan við höfum þetta en tæknin er okkur í blóð borin, ég segi ekki annað.

    Fimmtudagur 05. október 2006 kl. 22:40 / Varanleg vefslóð
    Flokkað sem tækni / 3

    skólinn og lífið

    Ég er alltaf komin snemma heim úr skólanum og ég elska það :) Núna er ég reyndar að skrópa í HTML tíma en þegar maður hefur talað html í átta ár þá nennir maður ekki að sitja undir þessu einfalda (call me miss cocky..). Óli er ennþá í skólanum og var á bílnum þannig að í staðinn fyrir að sækja bílinn og sækja svo Óla á eftir þá ákvað ég að taka bara strætó heim. Það er reyndar enginn strætó sem fer alla leiðina þannig að ég þurfti að skipta á miðri leið.
    Það er gaman að taka strætó hérna - miðað við RVK þá eru sennilega öll strætókerfi skemmtileg. Hér fer maður inn að aftan, stimplar miðann sinn (eða ekki) og svo út að framan. Hérna les líka vagnstjórinn upp næstu götur/stoppistöðvar þannig að hann virkar ekki eins úldinn og önugur maður hefur vanist áður.
    Áður en ég fór heim kom ég við í bókabúðinni í skólanum og keypti markaðsfræðibókina sem við erum að lesa núna, það er nú kominn október og kominn tími til að lesa skólabækurnar :) Hún var hins vegar frekar þung og seig í þegar ég var að bíða eftir næsta strætó sem tók heila eilífð að því virtist. Það var nefnilega við eina stærstu götuna hérna, Viborgvej, og akkúrat á 2km kafla þar sem verið er að breikka hana - þeir eru búnir að vera að vinna í þessu síðan áður en við komum hingað en með sínum löngu hádegishléum, hætta-að-vinna-klukkan-fjögur stefnu og engri yfirvinnu þá held ég að þeir verði örugglega í því að breikka götuna allan tíman sem við verðum hérna. Allavega sér maður engan mun frá degi til dags.
    Ásamt því að kaupa markaðsfræðibókina keypti ég líka aðra bók sem mig hefur langað í lengi; Web Redesign eftir Kelly Goto sem var með magnaðan fyrirlestur á vefráðstefnunni heima í apríl. Þannig að það verður kannski svolítill tími þar til ég kíki í markaðsfræðibókina ;)

    Fimmtudagur 05. október 2006 kl. 10:29 / Varanleg vefslóð
    Flokkað sem danmörk / netið / skólinn / 1

    jóla...

    Við erum komin í jólagírinn hérna - nei ekki jólaskapið, heldur er kominn tími til að skipuleggja hvernig á að eyða jólafríinu. Óli er kominn í frí 18. des en skólinn minn ætlar að halda okkur út 21. des sem er ákaflega ójólalegt af þeim. Skólinn byrjar svo aftur strax 2. janúar, en að öllum líkindum verða fyrstu dagarnir ekki mjög merkilegir.
    Við erum búin að ræða það fram og aftur að við verðum eiginlega að fara og vera heima um jólin. Þetta er náttúrulega fínt tækifæri að prófa að halda jól einusinni í útlöndum en einhvernveginn er nýungagirnin ekki það mikil, þegar maður veit hvað hinn kosturinn er frábær. Þetta eru líka svo merkilegur tími fyrir lítinn strák að maður vill að hann fái að njóta hans með ömmu sinni og afa og öllum hinum líka.
    Ferðalagið er hins vegar langt; tæpra 4 tíma keyrsla til köben, svo 3 tíma flug og svo þarf að koma sér norður. Líklega kostar þetta ferðalag allt rúman 100þ kall, eða 10þ kall per dag í jólafríi! Sem betur fer eigum við gott fólk sem vill fá okkur heim, annars væri þetta ekki til umræðu :)

    Þriðjudagur 03. október 2006 kl. 18:51 / Varanleg vefslóð
    Flokkað sem heimilið / 4

    af verkföllum og skólum

    Við Danni erum búin að vera heima núna í tvo daga út af verkfallinu hjá leikskólakennurum, sem á reyndar að enda í dag. Það er mjög fínt veður núna reyndar og víða má sjá fólk í garðvinnu núna í byrjun október, við kvörtum ekki yfir því.
    Fallega tölvan mín hefur það líka alveg einstaklega gott. Hún er nú að verða nokkuð vel græjuð enda fann ég *óvart* fontasafnið úr vinnunni á diski og sitthvað fleira. Svo verður eiginlega að þakka símafyrirtækinu TDC fyrir að hífa hraðann hjá okkur upp úr 1mb yfir í 8mb/sek núna í haust, en þeir eru að reyna að koma okkur á bragðið og munu lækka hraðann aftur núna fljótlega. Þann dag verður grátið því bragðið er gott.
    Skólinn gengur líka fínt, á föstudaginn í síðustu viku var yfirferð á verkefni sem var gert eftir kennslu síðustu vikna, þar áttum við að fjalla um einhvern menningaratburð, gera poster og vef ásamt svolítilli skýrsku, sem var skiljanlega ekki mikið mál fyrir mína! Ég ákvað að taka fyrir fiskidaginn mikla þar sem ég er ekkert of hrifin af því sem hefur verið gert áður, það er auðvitað bara smekksatriði.

    Ég hef líka verið að spá í því, hvort ég sé á réttum stað í þessum skóla, þetta er bara hálfgerður iðnskóli. Þegar við ákváðum að koma hingað byrjaði ég að skoða mastersnám í Multimedia sem er kennt hérna við Aarhus University, og Óli er í því að hluta til, en það nám er mjög mikið akademískt og mig vantar svolítið tæknilegan grunn fyrir það. Þetta nám sem ég er í mun, þegar fram í sækir, fara í flash vinnslu og php + javascript forritun sem mig langar að læra en þangað til er þetta ekki svo krefjandi. Það er kannski líka allt í lagi því þá hefur maður tíma til að vera heima og leika einstöku sinnum þegar aðrir eru í verkfalli.

    Þriðjudagur 03. október 2006 kl. 14:17 / Varanleg vefslóð
    Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / skólinn / 0