vikan framundan

Þið haldið kannski að ég sé búin að vera upptekin alla helgina við að leika mér í nýju tölvunni.. því miður.. hún er ekki ennþá komin! ég þorði varla út úr húsi alla vikuna ef ske kynni. Buuhuhuu..
En order statusinn á apple.com segir að ég þurfi ekkert að örvænta, þeir ætla að gefa sér tíma til 26. sept en ég hélt bara að þeir vissu hvað ég væri mikið að bíða.
Næsta vika verður aðeins strembnari í skólanum heldur en hefur verið, allavega er stundaskráin frá 8:15-16:00 í vikunni miðað við að hafa verið frá 9-12. Núna er fyrstu lotu að ljúka og vikan fer í verkefnavinnu. Skipulagið í skólanum er þannig að maður þarf að standast loturnar til að geta komist áfram, það eru engar einkunnir gefnar og engin jólapróf, bara að fá OK og þá er maður kominn í gegn. Ég veit ekki alveg hvort þetta verða einstaklingsverkefni eða hópaverkefni, það kemur í ljós á morgun.
Já, 8:15 á morgun. Það þýðir púsluspil því við erum uþb 35 min að koma okkur út og fara með Danna á morgnanna og koma okkur í skólann. Það er eiginlega of snemmt fyrir hann að mæta fyrir kl 8 og Óli þarf ekki að mæta fyrr en kl 9 þannig að ég býst við því að ég taki bara hjólið í skólann á morgun og þeir feðgar fari svo seinna. Spáin er líka góð, sennilega um 12-15 stiga hiti í fyrramálið en verður upp undir 20 gráður um hádegi, heiðskýrt og 7m sek, verður varla betra.


Sunnudagur 24. september 2006 kl. 19:59
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / skólinn. Þar eru 11 færslur.

/ Álit

baddy:

ég vildi stundum að ég neyddist til þess að hjóla svo ég myndi hreyfa mig eitthvað en ég er bara svo löt og busy!! hey ég þarf kannski að fá þig til að gera annað verkefni fyrir okkur í skemmtinefndinni;)

26.09.06 01:19