Samsæriskenningar?
Samsæriskenningar geta verið nokkuð skemmtilegar en þegar virðist vera fótur fyrir þeim geta þær orðið ansi ógnvekjandi.
Danska sjónvarpið var duglegt að rifja upp atburði 11. september 2001 í síðustu viku. Þar var dansk/bandarískur heimildarþáttur um aburðina sýndur á þremur kvöldum held ég og væmnin alveg gubbaðist uppúr þeim.
Þess vegna var það hressilegt að horfa á nýju heimildarmyndina Loose Change sem ungur maður að nafni Dylan Avery gerði, þar sem ótrúleg gögn koma fram og hugmyndir um það hver hafi leikstýrt þessum atburðum, mjög sláandi.
Myndina er hægt að nálgast ókeypis á Question911.com og svo sannarlega er þörf á að heimurinn sjái þessa mynd.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / video. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
ég og karen vorum einmitt að tala um þessa mynd í vikulega göngutúrnum okkar og ég var einmitt að leita að þessari mynd, hef nefnilega bara heyrt um hana, ekki séð! og viti menn þú bara með allar upplýsingarnar;)ætla að fara að ná í hana;)
já gott mál.. það er líka hægt að finna hana á torrent
Ég er alveg á því að það eru bandaríkjamenn sem stóðu á bakvið þetta. Ég er búinn að horfa á 3 svona myndir, þessi fanst mér reyndar lélegust af þeim öllum þar sem þeir eru svo svakalega einhliða í sinni umfjöllun og ungir. Þessi sem er líka á síðunni er nokkuð góð og leifir manni frekar að gera upp hug sinn sjálfur "Truth of 9/11"
Larry eigandi WTC og Bush forseti hafa brallað þetta saman.

