smá heimþrá

Við erum búin að vera hérna í mánuð og það er strax nokkrir hlutir sem ég sakna heimanfrá...

Kranavatnið. Vatnið hér er alveg fínt á evrópskan mælikvarða, eiginlega mjög gott, en þegar maður er vanur frísku og ókeypis vatni úr krananum þá er ekki hægt að sætta sig við neitt minna. Við kaupum ágætis vatn á flöskum en það er alveg steindautt og flatt, ekkert bragð eða líf í því.

Heimabankinn. Við fórum í viðskipti við Nordea sem er fínn banki og við fengum Dankort um leið (Dankort er eina kortið sem er nokkuð gjaldgengt allsstaðar, ekki nærriþví allar verslanir taka þessi venjulegu debetkort) en hefur víst verið mikið bras að fá Dankort fyrir þá sem eru nýkomnir til landsins, eru ekki með fastar tekjur og eiga ekki eignir hérna þannig að við getum verið nokkuð sæl með þetta.
En já, netbanki Nordea er alveg ágætur og alveg hægt að nota hann.. fyrir utan að hann er lokaður á næturnar og ekki hægt að borga reikninga á kvöldin! En maður sér bara núna hvað íslensku netbankarnir eru bestir í heimi og það er ekkert djók!

Fiskur - hvar fær maður góðan fisk? Við erum búin að prófa lax og þorsk - finn ekki ýsu og þó þetta hafi verið norskar afurðir þá fannst mér þetta ekki góður fiskur. Ég ætla samt að halda áfram að prófa mig áfram og sjá hvort ég geti ekki fundið einhvern ætan fisk - annars þarf ég bara að hringja í pabba!


Föstudagur 08. september 2006 kl. 15:44
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.

/ Álit

baddy:

það er bara enginn fiskur eins góður og pabba fiskur, svoleiðis er það bara!!

09.09.06 19:41


baddy:

það besta er nottlega heimasaltaði saltfiskurinn hans pabba með heimagerða berjasaftinu hennar mömmu....mmmmmmm

09.09.06 19:48


Dagný:

jæja, einhver að njóta þess að búa á Hótel Mömmu!! Njóttu þess bara :)

09.09.06 19:50


Hanna:

Heyy! Mig langar í salfisk og berjasaft!! :D
En já Dagný.. þetta er allt bara spurning um að gera nógu djúsí fiskirétti og fela fiskbragðið undir öðrum brögðum ;) Það virkar allavega hérna...

10.09.06 17:36


baddy:

umm það er örugglega gott bragð!!:)

10.09.06 21:50


The housevikings:

Man eftir að hafa keypt ferskan fisk á fiskmarkaði niður við höfn, n.t.t. í námunda við smábátabryggjurnar sem eru miðja vegu milli miðbæjarins og Risskov. Það er líka fín dönskuæfing að tala við karlana þar !

11.09.06 15:07


gunna:

já sammála þér um vatnið - það bara vantar eitthvað í flöskuvatnið í útlöndum. Það er engan veginn jafn svalandi og íslenska kranavatnið!
Og já, sama með fiskinn hérna líka, ég er frekar bangin við að prufa mig áfram í fiskmetinu og hrædd um að hann verði ekki jafn góður og Ragga-fiskurinn! :)

11.09.06 18:54


mamma:

Það er allt best heima :)

Eina vatnið sem ég hef getað drukkið í þessu ferðum okkar var frá Sviss. Það var mynd með snæviþöktum fjöllum á flöskunni.

12.09.06 13:33