konukvöld og annarlegur dagur
Í gærkvöldi fór ég með nágrannakonum mínum á konukvöld í Magasin. Þar voru alls konar smakkanir og snyrtivörukynningar en engin almennileg tilboð samt, sem mér fannst frekar slappt. Ég ætlaði að kaupa mér meira Clinique meik og sagði stelpunni þar að ég talaði ekki góða dönsku en hún sagði að það væri allt í lagi - en svo kom hún bara og lét móðan mása á sinni illskiljanlegu dönsku, og áður en ég vissi af var hún búin að prófa 3 tegundir af meiki á andlitinu á mér og svo sá ég á henni að hún var að spyrja mig að einhverju og ég sagði bara "jeh, det er fint" dööö... manni líður eins og algjörum sucker hérna.. En ég fór frá henni með prufur sem endast mér í dágóðan tíma.
Svo fórum við nágrannakonurnar á bar í nágrenninu og kjöftuðum aðeins, þær eru ofsalega fínar. Ég fékk mér auðvitað einn öl (eiginlega sá fyrsti sem ég drekk hérna í þessu mikla bjórlandi) en náði samt ekki að klára hann og við vorum komnar heim fyrir kl 11.
Í nótt hins vegar dundi yfir mig ælupestin sem Danni er búinn að vera með alla vikuna og vá hvað ég vorkenndi sjálfri mér, og honum, í nótt og í allan dag.. búin að vera alveg ónýt og er rétt að skríða saman núna enda er þetta frekar ógeðslegt ástand. Ég kenni bjórnum í gærkvöldi bara um þetta ástand, maður á ekki að drekka bjór, þannig er nú það.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Neinei! Ekki kenna bjórnum um! Kenndu frekar einhverju öðru um.. eins og t.d. breyttum matarvenjum? :D Hehehe
Láttu þér samt batna systir sæl
Gott að þú ert búin að eignast vini í útlandinu ;)
Mín reynsla er að það er fínt að biðja Danina um að tala aðeins hægar. Ef þeir halda áfram í vélbyssugírnum þá er gott að tala íslensku við þá á móti.
ciao
oj öfunda þig ekki af ælupestinni...*vorkenn*
Guðný:
Hæ!
Ég er sammála Hönnu um að þessi ælupest hafi ekkert með bjórinn að gera - ekki gafstu barninu bjór eða hvað? ;)
Skil ekkert í þér að vera svona léleg í ölinu....
Bið að heilsa köllunum þínum. Er á leiðinni suður í staðlotu og sárvantar húsnæði!!! Missjú!

