kaka í ofninum
Sumarið virðirst ætla að kveðja með krafti því hér er alveg stórgott veður, í tilefni af því liggur Óli hér á sófanum sofandi yfir sjónvarpinu og Danni í sínu rúmi, sömuleiðis sofandi. Ég ákvað hins vegar að hræra í eina súkkulaðiköku, svona til að prófa bakaraofninn (og dönsku betty crocker pakkana). Hann hefur nefnilega ekki verið notaður mikið því fyrst kunnum við ekkert á hann. Eftir nokkra daga hérna (næstumþví tvær vikur held ég) fengum við þær upplýsingar að maður þarf að stilla tímann á ofninum svo að hann fari af stað. Sennilega orkusparnaðargenið í dönum að hafa sín áhrif. En núna er kökuilmurinn er farinn að læðast út í sólina og eins gott að geitungarnir eru að verða dauðir því annars væru þeir ekki lengi að koma og heimta "smakk".
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
hér eru sko engar kökur búnar til bara berjasaft og sultur. var einmitt að hakka í eina slíka hérna hjá mömmu í dag:) en crockerinn klikkar sko ekki!

