flatskermur og lamagardínur
Áður en við fluttum gerðum við Óli samkomulag okkar á milli um að hann myndi sjá um sjónvarpskaupin og ég myndi sjá um að velja gardínurnar. Fyrirtaks sáttmáli að mér fannst, enda höfum við slegist nóg í gegnum tíðina yfir gardínuvali.
Við erum búin að vera hérna í mánuð og ekkert hefur bólað á sjónvarpinu. Í þrjú skipti hefur þetta eina sanna tæki verið valið; með tilliti til verðs (eða óverðs), myndgæða, HDMI og digital younameit, fyrst var það Philips og svo Sony.. við erum nokkrum sinnum búin að fara nokkrum sinnum í hinn eina sanna verslunarleiðangur en það hefur alltaf verið eitthvað sem hefur stoppað, annaðhvort ekki til á lager og nokkurra vikna bið (þó þau séu auglýst alveg á milljón) og í eitt skiptið fengum við höfnun á íslenska visakortið því upphæðin var of há fyrir staka erlenda færslu. Þannig að of oft höfum við komið tómhent heim.
Sömuleiðis hafa nágrannarnir notið útsýnisins inn í stofu til okkar á kvöldin, þar sem allir gluggar nema hornglugginn í stofunni eru klæddir, örugglega blöskrandi yfir því hvað við nennum að hanga lengi yfir tölvunni. Hérna er orðið slökkt klukkan ellefu í öllum öðrum gluggum í hverfinu, öllum nema í varðturninum.
En í vikunni var þessu bjargað. Nýja sjónvarpið okkar er geeeeðveikt.. alveg rosalegt! Núna getum við horft á alla skemmtilegu dönsku getraunaleikina (hvað er annars málið með það?), sænska Idolið og döbbaðar þýskar myndir en höfum aðallega verið að horfa á Bamba á DVD sem Danni fékk frá ömmu sinni og afa.
Þegar það var frágengið og komið inn í stofu gat ég varla setið lengur á mér og varð að redda gardínumálunum og setti því upp strimlagardínur (eða kaupfélagsskrifstofugardínur segir Óli) og ég er að missa mig, mér finnst þær ótrúlega flottar.
Góð tilfinning að geta loksins sett hak við þetta tvennt í todo listanum.
Flokkað sem heimilið. Þar eru 57 færslur.
/ Álit
Til hamingju með bæði sjónvarp og gardínur! Bæði alveg geggjað flott :D
Mér fannst þessi sáttmáli algjör snilld þar sem ég mun ALDREI gleyma IKEA-ferðinni góðu með ykkur Óla! ;) Og ég mun heldur aldrei fá leið á því að minna ykkur á þessa ferð híhíhí
Knús til Danna
Hanna
(Haha - þetta rímaði!)
já ógó flott sko...held samt að ég verði að koma og sjá þetta með berum sko;)
Ávallt og ætíð velkomin!



RSS veita