upphafið að martröðinni

Í Danmörku verður kerti kveikt í kvöld til minningar um land sem átti tækifæri og í þeirri von að fólk fari núna að hugsa af skynsemi til framtíðar.
Hafið þið tekið eftir borðanum í horninu hjá mér... "make poverty history"? Ég hef lengi verið að spá í að gera svona Sorgarband, kannski ég láti verða af því.

Fimmtudagur 28. september 2006 kl. 17:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

mótmælahugur

Þið hafið kannski ekkert heyrt af því en það hefur ekkert farið framhjá okkur þetta verkfall hjá leikskólakennurum hérna í Danmörku. Friðelskandi og barngóðir kennarar breytast núna í orðljóta kröfuskiltateiknara sem hanga úti á götuhorni 8 tíma á dag. Leikskólarnir eru þaktir orðum eins og "stop tyvene", "Børn er Danmarks råstof" (råstof þýðir hráefni held ég) og allt er held ég að verða vitlaust vegna þess að það á að gera mikinn niðurskurð í leikskólanum hérna þannig að gæðin á þjónustunni við börnin minnka mikið. Það vilja Danir alls ekki sætta sig við og það er ágætt að vita.
Þetta á víst langan aðdraganda, einhverntíman fyrir ári eða lengra síðan var hætt að elda mat á leikskólunum vegna þess að það þótti of dýrt. Síðan þá hafa börnin farið með madpakke í leikskólann þannig að það þýðir kaldur matur allan daginn, og reyndar ekki svo kaldur því víða var ekki leyft að hafa ísskápa (þó svo foreldrarnir hafi viljað leggja þá sjálfir til) og alls ekki hægt að hita neitt upp. Þannig að ástandið er ekki svo gott í þessu samfélagi sem flestir telja að sé svo barnvænt.
En núna er mælirinn víst fullur og það má sjá á hverju götuhorni. Það er svolítið ánægjulegt að sjá fólk sem kann að mótmæla og veit að verkfall er ekki frí, þeir eru sína 8 tíma á dag í hópum úti á götum, í fjölmiðlum og á meðal fólks að berjast fyrir sínum kröfum.
Þetta hefur reyndar ekki bitnað á okkar daggæslu því dagforeldrar eru ekki í verkfalli ennþá (gæti alveg trúað því að það komi samúðarverkfall), hins vegar eru margir staðir eins og leikvellir, garðar og frístundaheimili sem þau sækja á, lokuð.

Miðvikudagur 27. september 2006 kl. 08:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / uppeldi / 7

MBP

Elsku fallega macbookpro er komin heim til mömmu!!

Mánudagur 25. september 2006 kl. 17:33 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 7

vikan framundan

Þið haldið kannski að ég sé búin að vera upptekin alla helgina við að leika mér í nýju tölvunni.. því miður.. hún er ekki ennþá komin! ég þorði varla út úr húsi alla vikuna ef ske kynni. Buuhuhuu..
En order statusinn á apple.com segir að ég þurfi ekkert að örvænta, þeir ætla að gefa sér tíma til 26. sept en ég hélt bara að þeir vissu hvað ég væri mikið að bíða.
Næsta vika verður aðeins strembnari í skólanum heldur en hefur verið, allavega er stundaskráin frá 8:15-16:00 í vikunni miðað við að hafa verið frá 9-12. Núna er fyrstu lotu að ljúka og vikan fer í verkefnavinnu. Skipulagið í skólanum er þannig að maður þarf að standast loturnar til að geta komist áfram, það eru engar einkunnir gefnar og engin jólapróf, bara að fá OK og þá er maður kominn í gegn. Ég veit ekki alveg hvort þetta verða einstaklingsverkefni eða hópaverkefni, það kemur í ljós á morgun.
Já, 8:15 á morgun. Það þýðir púsluspil því við erum uþb 35 min að koma okkur út og fara með Danna á morgnanna og koma okkur í skólann. Það er eiginlega of snemmt fyrir hann að mæta fyrir kl 8 og Óli þarf ekki að mæta fyrr en kl 9 þannig að ég býst við því að ég taki bara hjólið í skólann á morgun og þeir feðgar fari svo seinna. Spáin er líka góð, sennilega um 12-15 stiga hiti í fyrramálið en verður upp undir 20 gráður um hádegi, heiðskýrt og 7m sek, verður varla betra.

Sunnudagur 24. september 2006 kl. 19:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / skólinn / 1

"Thank you for buying a Mac!"

macbookpro.pngJebb, ég lét verða af því í síðustu viku, verslaði eina MacBookPro í gegnum vefverslun apple.com. Ég lét breyta henni aðeins þannig að hún fer ekki af stað fyrr en á morgun (frá Hollandi held ég..) og kemur því núna í næstu viku, en vá hvað ég hlakka til. Ég neyðist til að skrópa í skólanum í einhverja daga til að vera heima og taka á móti henni. Ég hefði átt að eignast svona vél fyrir ca 6 árum.. en biðin er að verða á enda og það er svolítið óraunverulegt að hugsa til þess.

Sunnudagur 17. september 2006 kl. 21:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / tækni / 7

Magni = Stóriðja!

Er Magni Ásgeirsson ekki stóriðjan sem Austfirðingar vildu? Kannski var því spáð fyrir Valgerði Sverris að í hennar ráðherratíð myndi rísa stóriðja á Austurlandi, en hana grunaði ekki að það væri í stóli utanríkisráðherra en ekki iðnaðarráðherra!
*Vúps!!*

Laugardagur 16. september 2006 kl. 22:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

Samsæriskenningar?

screening_bw_sml.jpg Samsæriskenningar geta verið nokkuð skemmtilegar en þegar virðist vera fótur fyrir þeim geta þær orðið ansi ógnvekjandi.
Danska sjónvarpið var duglegt að rifja upp atburði 11. september 2001 í síðustu viku. Þar var dansk/bandarískur heimildarþáttur um aburðina sýndur á þremur kvöldum held ég og væmnin alveg gubbaðist uppúr þeim.
Þess vegna var það hressilegt að horfa á nýju heimildarmyndina Loose Change sem ungur maður að nafni Dylan Avery gerði, þar sem ótrúleg gögn koma fram og hugmyndir um það hver hafi leikstýrt þessum atburðum, mjög sláandi.
Myndina er hægt að nálgast ókeypis á Question911.com og svo sannarlega er þörf á að heimurinn sjái þessa mynd.

Föstudagur 15. september 2006 kl. 07:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / video / 3

Vörumerkið Ísland

Vörumerkið Ísland er kærkomin hugmynd, ein sú besta sem ég hef heyrt lengi.
Og ímyndarsköpun er ekki að búa til einhverja glansmynd sem við getum ekki staðið undir, heldur tæki þar sem við greinum hvað við erum, hvað við viljum vera, hvers vegna og hvernig við vinnum að því. Ég held nefnilega, og fannst það löngu áður en ég kom hingað út, að Íslendingar vanmeti það sem íslenskt er og hafi ákveðna minnimáttarkennd gagnvart því þrátt fyrir alla þjóðrembuna sem við (höldum að við) búum yfir.
Og ég skal leyfa mér að efast stórkostlega um að í vörumerkinu Ísland felist fleiri álver.

Miðvikudagur 13. september 2006 kl. 19:10 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 3

kaka í ofninum

Sumarið virðirst ætla að kveðja með krafti því hér er alveg stórgott veður, í tilefni af því liggur Óli hér á sófanum sofandi yfir sjónvarpinu og Danni í sínu rúmi, sömuleiðis sofandi. Ég ákvað hins vegar að hræra í eina súkkulaðiköku, svona til að prófa bakaraofninn (og dönsku betty crocker pakkana). Hann hefur nefnilega ekki verið notaður mikið því fyrst kunnum við ekkert á hann. Eftir nokkra daga hérna (næstumþví tvær vikur held ég) fengum við þær upplýsingar að maður þarf að stilla tímann á ofninum svo að hann fari af stað. Sennilega orkusparnaðargenið í dönum að hafa sín áhrif. En núna er kökuilmurinn er farinn að læðast út í sólina og eins gott að geitungarnir eru að verða dauðir því annars væru þeir ekki lengi að koma og heimta "smakk".

Laugardagur 09. september 2006 kl. 13:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

smá heimþrá

Við erum búin að vera hérna í mánuð og það er strax nokkrir hlutir sem ég sakna heimanfrá...

Kranavatnið. Vatnið hér er alveg fínt á evrópskan mælikvarða, eiginlega mjög gott, en þegar maður er vanur frísku og ókeypis vatni úr krananum þá er ekki hægt að sætta sig við neitt minna. Við kaupum ágætis vatn á flöskum en það er alveg steindautt og flatt, ekkert bragð eða líf í því.

Heimabankinn. Við fórum í viðskipti við Nordea sem er fínn banki og við fengum Dankort um leið (Dankort er eina kortið sem er nokkuð gjaldgengt allsstaðar, ekki nærriþví allar verslanir taka þessi venjulegu debetkort) en hefur víst verið mikið bras að fá Dankort fyrir þá sem eru nýkomnir til landsins, eru ekki með fastar tekjur og eiga ekki eignir hérna þannig að við getum verið nokkuð sæl með þetta.
En já, netbanki Nordea er alveg ágætur og alveg hægt að nota hann.. fyrir utan að hann er lokaður á næturnar og ekki hægt að borga reikninga á kvöldin! En maður sér bara núna hvað íslensku netbankarnir eru bestir í heimi og það er ekkert djók!

Fiskur - hvar fær maður góðan fisk? Við erum búin að prófa lax og þorsk - finn ekki ýsu og þó þetta hafi verið norskar afurðir þá fannst mér þetta ekki góður fiskur. Ég ætla samt að halda áfram að prófa mig áfram og sjá hvort ég geti ekki fundið einhvern ætan fisk - annars þarf ég bara að hringja í pabba!

Föstudagur 08. september 2006 kl. 15:44 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 8

flatskermur og lamagardínur

Áður en við fluttum gerðum við Óli samkomulag okkar á milli um að hann myndi sjá um sjónvarpskaupin og ég myndi sjá um að velja gardínurnar. Fyrirtaks sáttmáli að mér fannst, enda höfum við slegist nóg í gegnum tíðina yfir gardínuvali.
Við erum búin að vera hérna í mánuð og ekkert hefur bólað á sjónvarpinu. Í þrjú skipti hefur þetta eina sanna tæki verið valið; með tilliti til verðs (eða óverðs), myndgæða, HDMI og digital younameit, fyrst var það Philips og svo Sony.. við erum nokkrum sinnum búin að fara nokkrum sinnum í hinn eina sanna verslunarleiðangur en það hefur alltaf verið eitthvað sem hefur stoppað, annaðhvort ekki til á lager og nokkurra vikna bið (þó þau séu auglýst alveg á milljón) og í eitt skiptið fengum við höfnun á íslenska visakortið því upphæðin var of há fyrir staka erlenda færslu. Þannig að of oft höfum við komið tómhent heim.
Sömuleiðis hafa nágrannarnir notið útsýnisins inn í stofu til okkar á kvöldin, þar sem allir gluggar nema hornglugginn í stofunni eru klæddir, örugglega blöskrandi yfir því hvað við nennum að hanga lengi yfir tölvunni. Hérna er orðið slökkt klukkan ellefu í öllum öðrum gluggum í hverfinu, öllum nema í varðturninum.

En í vikunni var þessu bjargað. Nýja sjónvarpið okkar er geeeeðveikt.. alveg rosalegt! Núna getum við horft á alla skemmtilegu dönsku getraunaleikina (hvað er annars málið með það?), sænska Idolið og döbbaðar þýskar myndir en höfum aðallega verið að horfa á Bamba á DVD sem Danni fékk frá ömmu sinni og afa.
Þegar það var frágengið og komið inn í stofu gat ég varla setið lengur á mér og varð að redda gardínumálunum og setti því upp strimlagardínur (eða kaupfélagsskrifstofugardínur segir Óli) og ég er að missa mig, mér finnst þær ótrúlega flottar.
Góð tilfinning að geta loksins sett hak við þetta tvennt í todo listanum.

Fimmtudagur 07. september 2006 kl. 20:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 3

skólinn

Skólinn er kominn á fullt skrið hjá mér núna þannig að loksins finnst manni maður hafa hlutverk hérna (annað en að versla í ikea). Það er ýmislegt í skólanum sem maður á eftir að venjast, ég venst þess seint að það sé leyft að reykja á göngunum enda tekur maður krók frá helstu reykingarstöðunum. Það var bara núna í haust sem það var bannað að reykja í matsalnum (Kantinen) en gvuðisélof að það er búið að lofta vel út.
Matsalurinn er líka áhugaverður, það er hægt að kaupa ágætis mat á fínu verði, en það er ekki hægt að borga með korti - í morgun var ég búin að fá mér fullan disk af pasta og var bara með kortið á mér, þá sagði kassadaman að ég þyrfti að nota posann sem var innst inni í horninu við hliðina á kók-kælinum.. Semsagt, þangað þarf maður að fara með kortið, strauja það sjálfur og fara með kvittunina að kassanum, og þá fær maður til baka ef maður hefur tekið framyfir. Undarlegt.
Sjónvarpið kemur loksins á morgun..eiginlega stórhættulegt og unaðslegt sjónvarp. Segi ekki meir.

Mánudagur 04. september 2006 kl. 12:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

konukvöld og annarlegur dagur

Í gærkvöldi fór ég með nágrannakonum mínum á konukvöld í Magasin. Þar voru alls konar smakkanir og snyrtivörukynningar en engin almennileg tilboð samt, sem mér fannst frekar slappt. Ég ætlaði að kaupa mér meira Clinique meik og sagði stelpunni þar að ég talaði ekki góða dönsku en hún sagði að það væri allt í lagi - en svo kom hún bara og lét móðan mása á sinni illskiljanlegu dönsku, og áður en ég vissi af var hún búin að prófa 3 tegundir af meiki á andlitinu á mér og svo sá ég á henni að hún var að spyrja mig að einhverju og ég sagði bara "jeh, det er fint" dööö... manni líður eins og algjörum sucker hérna.. En ég fór frá henni með prufur sem endast mér í dágóðan tíma.
Svo fórum við nágrannakonurnar á bar í nágrenninu og kjöftuðum aðeins, þær eru ofsalega fínar. Ég fékk mér auðvitað einn öl (eiginlega sá fyrsti sem ég drekk hérna í þessu mikla bjórlandi) en náði samt ekki að klára hann og við vorum komnar heim fyrir kl 11.
Í nótt hins vegar dundi yfir mig ælupestin sem Danni er búinn að vera með alla vikuna og vá hvað ég vorkenndi sjálfri mér, og honum, í nótt og í allan dag.. búin að vera alveg ónýt og er rétt að skríða saman núna enda er þetta frekar ógeðslegt ástand. Ég kenni bjórnum í gærkvöldi bara um þetta ástand, maður á ekki að drekka bjór, þannig er nú það.

Föstudagur 01. september 2006 kl. 17:50 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4