Tónleikar í bræðslunni

Tónleikarnir fyrir austan með Emiliönu Torrini og Belle and Sebastian voru stórkostlegir. Það var gaman að koma einusinni á borgarfjörð þetta sumar, þangað er alltaf gott að koma. Móðurfjölskyldan hans Óla á ættaróðal þarna á þessum fallega stað og við tjölduðum tjaldkerrunni í hlaðinu. Ekki var verra að Emiliana og hennar band dvaldi í götunni og Belle and Sebastian í næsta húsi við. Við vorum mætt snemma í bræðsluna, samt ekki alveg fyrst en frænkur hans Óla voru búnar að "panta" besta stað í húsinu þannig að við tróðum okkur með þeim. Þvílíkir tónleikar. Úff vá þetta var svo flott.
Við rukum af stað á sunnudag. Við ætluðum að kíkja upp að Kárahnjúkum en það var svo lágskýjað (les. þoka) að við ákváðum að fara frekar beint norður. Það er samt ekki þannig að maður geti bara "kíkt seinna" á þetta svæði. En við eigum leið hjá á morgun þannig að ef við verðum á góðum tíma þá náum við vonandi að kíkja þarna uppeftir.


Þriðjudagur 01. ágúst 2006 kl. 16:04
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 103 færslur.

/ Álit

mundi:

já - kaupi hvert orð þarna... hefði viljað vera vitni að þessum atburði.

01.08.06 21:43


baddy:

vá hvað ég hefði viljað vera þarna og hlusta...en fór á sigurrós á miklatúni í staðinn.

03.08.06 15:30


Guðný:

ójá......

04.08.06 09:31