thunder -- a a a a a...

Þrumuguðinn Þór hefur verið duglegur að tjá sig undanfarna daga og einhver kerling kemur á eftir honum með garðkönnu og vökvar hressilega, þetta er orðið frekar pirrandi. Í gær lentum við í 2 mín rigningu þar sem mánaðarregn Akureyrarbæjar að magni, lenti á okkur þar sem við trilluðum innkaupakerrunni okkar frá ikea og út í bíl.
Núna erum við Danni á leið til Brian dagpabba þar sem hann þarf aðeins að venjast því umhverfi. Á morgun verður dagurinn tekinn snemma hjá dagpabba og mamman bregður sér kannski aðeins frá þá.


Mánudagur 21. ágúst 2006 kl. 13:03
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 103 færslur.

/ Álit

Jonathan Gerlach:

já, þessi rigning er farin að vera ansi pirrandi!! Jaaaaaarrrr

21.08.06 14:34


baddy:

er ekki bara hressandi að fá smá svona gusu á sig! hehee ég hló sko upphátt þegar ég sá þessa mynd (og var þá stödd á bókasafninu!!) hehe

21.08.06 19:35


dagný:

við gátum ekki heldur annað en hlegið.. gjörsamlega fáránleg uppákoma ;) en ömurlega blaut föt

21.08.06 19:38


Hanna:

Já ég skellihló alveg þegar ég sá þessa mynd. Óli er líka svo fyndinn á svipinn ;)
Ef ég ætti íbúð hérna í USA þá myndi ég svo sannarlega vera búin að versla jafn mikið og þú systir sæl. Ég labba stundum með hundinn í Target á kvöldin.. svona 5-7mín labb. Algjör snilld :D

23.08.06 07:54