skal vi snakke sammen
Ég er orðin nokkuð köld á að nota dönskuna. Allavega erum við búin að sækja um heimasíma, netið og gsm á dönsku, opna bankareikning og fá slatta af Dankortum hingað heim ásamt því að geta loggað okkur inn í netbankann þannig að eitthvað erum við að segja rétt. Auk þess fara öll samskipti okkar við dagpabbann fram á dönsku en ég náði samt ekki alveg því sem var að gerast í dag hjá þeim, eitthvað í sambandi við apa og gíraffa. Ég vona að hann hafi ekki farið með þau til Afríku. Ha ha.
En við reynum samt að hafa útvarpið í gangi þegar við erum hérna heima og í bílnum. Danmarks radio 1 og 2 eru alltaf með einhverja spjallþætti "svona Spegil RÚV-sins" og það er mjög gefandi þegar maður fattar um hvað er verið að tala. Gefandi já.
Sjónvarpið er hins vegar ekki komið í hús ennþá en það er allavega búið að velja það. Við gerðum heiðarlega tilraun til að ná í það í Electric City um daginn en það var svo óhemju mikil upphæð að það þurfti að hringja handvirkt til Visa á Íslandi (gott að heimilisfaðirinn er vel að sér í heimildaleitarkerfum) þannig að við við söltuðum það aðeins og ætlum að nálgast það eftir helgi með Dankortinu okkar. Við eigum hvortsemer ekki sjónvarpsskáp undir það (en erum búin að fara nokkrar ferðir í mublubúðir og sennilega búin að finna það sem virkar best; heldur litlum puttum í hæfilegri fjarlægð)
og það liggur ekkert á að fjárfesta í sjónvarpsskáp af því það er ekkert sjónvarp komið ennþá.
Sniðugt.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur. / heimilið. Þar eru 57 færslur.
/ Álit
Ja hérna.. mér þykir þið dugleg! Ekki búin að vera mánuð úti.
Við vorum einmitt að sækja um svissneskt ökuskírteini áður en við fórum heim. Vorum að renna á tíma með það því það verður að gerast innan árs frá því maður flytur. Svona er þetta yfirleitt hjá okkur.
Núna hyggst ég nota sjónvarpskaup ykkar sem rökstuðning við slík kaup á mínu heimili.
já, það var sett í fullan gír hérna.. sennilega svolítið auðveldara að vera íslendingur í danmörku en annarsstaðar.
Við erum búin að sjá það að sjónvarp er algjör nauðsyn á öllum heilbrigðum heimilum, hér slást allir um tölvuna í sjónvarpsleysinu og sá sem öskrar hæst fær.. þessvegna er Bubbi byggir iðulega á skjánum, svona er uppeldið!
Gaman að heyra í þér Harpa, bið að heilsa kallinum.



RSS veita