shop-a-holic
Íbúðin okkar er nokkuð vel staðsett, svona verslunarleg séð. Fyrir það fyrsta er macdonalds úti á horni sem kom sér vel fyrstu dagana þegar hnífapörin voru ekki komin en er orðið svona frekar pirrandi að hafa gullbogana í útsýninu út um stofugluggan (svona svipað og snæland video var í kaplaskjólinu). Í 5 minútna akstursfjarlægð er svo Bilka (sama hjólafæri reyndar líka, tékkaði á því í fyrrakvöld) sem er mega stórt vöruhús þar sem ALLT er til, svona hagkaupsbúð x10. Í Bilka hverfinu er líka El-Giganten (sama og ELKO heima) og Electric City sem eru raftækjabúðir, Toys'R Us og BabySam ásamt Jysk (Rúmfatalagerinn). Og sjitt hvað við erum búin að versla mikið.
Ég á samt eftir að finna það sem er eitthvað mikið ódýrara hér en heima, mér finnst matvara vera bara á svipuðu verði, kannski fyrir utan kjöt og sælgæti. Bjórinn er vissulega töluvert ódýrari og það er ákveðin stemmning í því að kaupa kassa af Carlsberg í gleri á þúsundkall.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / heimilið. Þar eru 66 færslur.
/ Álit
gunna:
Velkomin til Danaveldis litla fjölskylda! :) Vonandi fer afskaplega vel um ykkur á nýja heimilinu. Var einmitt að kveðja Heiðu vinkonu mína ur Myndlistarskólanum - hún var að flytja til Köben í gær.
Bestu kveðjur að heiman FRÁ ÍSLANDINU... í bili ;)

