í skólanum...
Fyrsti skóladagurinn var í dag, svona ef ég dreg frá einn kynningardag í síðustu viku. Þetta leggst svona ágætlega í mig, getur örugglega orðið mjög skemmtilegt en ég er mest smeyk við að þetta verði of létt. Vissulega ræð ég svolítið þyngdinni sjálf, en margir kúrsar á þessarri önn eru byrjendakennsla grafískri hönnun eða í forritum eins og Photoshop og Dreamweaver sem ég er með BA gráðu í (ógeðslega klár stelpa). Hugsanlega get ég fengið eitthvað af því metið og eytt þá meiri tíma í forritun, markaðsfræði eða stærri verkefni, á eftir að tékka á því.
Bekkjarfélagarnir eru líka skrautlegir og skemmtilegir. Af hátt í 30 manns erum við 6 íslendingar sem er 5 of mikið.. um 15 menntaskólakrakkar frá Eistlandi/Lettlandi/Litháen, einn frá Suður Afríku, Bandaríkjunum, Ástralíu og Bretlandi, einn miðaldra karlmaður frá Írak og svo slatti af Dönum sem vildu læra á ensku. Það sem kemur örugglega til með að pirra mig (þið sjáið að ég er búin að ákveða það nú þegar) er að allt þetta fólk er með mismunandi bakgrunn og kannski flestir sem eru frekar tæknilega sinnaðir en útlitslega.
Þetta gæti orðið skítlétt og algjör tímasóun, eða þetta gæti líka orðið krefjandi verkefni - fer eiginlega allt eftir mér sjálfri.
Ég á eftir að fá mér pennaveski og liti en ég keypti mér samt ný skólaföt. Það er fyrir öllu.
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.
/ Álit
Já þú verður nú að fara að fjárfesta í einu svona harðspjalda pennaveski með yddara sem skýst út! Svona eins og við ræddum um, um daginn! Annars ertu nottla algjörlega out of style ;)
Bíddu ég hélt að þetta væri master þannig að allir væru með nokkuð góðan grunn.
Var ég bara að misskilja svona herfilega?
neinei, ég er ekki að fara í master, bara Óli - það er nóg að einn sé aldrei heima. Þetta er bara dægradvöl eiginlega.. sort of..
er þetta þá ekki bara þinn tími til að "shine-a" og heilla alla uppúr skónum með eðal lúkki;)...jiminn við fáum þig þá örugglega aldrei heim aftur...það verða einhverjir búinir að klófesta þig áður..!
í gvuðanna bænum ekki hafa áhyggjur af því... hahaa..
þú verður að passa þig á þessum frá Írak, hann gæti verið með sprengju eða eitthvað :þ

