á lífi

Eftir laaangan tíma kom nettengingin loksins í gær. Það stóð reyndar ekki á þeim TDC mönnum, þeir voru snöggir, en maður þarf að vera kominn inn í kerfið með kennitölu og slíkt, áður en maður getur fengið á sig einhverja reikninga hérna. En sem betur fer er þetta allt að smella.
Við erum líka búin að koma okkur ágætlega fyrir en vantar ennþá sjónvarpið, nettengingin læknar aðeins sjónvarpsþorstann og við náðum recap á síðustu Supernova þætti (Magni er sko frændi hans Óla) og á meðan sambandsleysinu stóð yljaði Dr Grey og hennar sjúkrahússögur mér um hjartarætur. Ég á ennþá eftir nokkra þætti úr seríu 2 sem ég geymi fyrir vídeospólukvöldin.
En alveg týpískt með veðrið hérna. Fyrstu dagana var sól og blíða og steikjandi hiti eins og það er búið að vera síðan í apríl, það entist fyrstu þrjá dagana okkar hérna. Svo kom þrumuveður, eldingar og rigning.. 18cm jafnfallin úrkoma (ég skil reyndar ekki hvernig vatn getur verið öðruvísi en jafnfallið..) í ágúst, meira en hefur verið í allt sumar. Algjörlega týpískt, sumarið ekki byrjað á íslandi þegar við förum og búið í danmörku þegar við loksins komum. Á þessu heimili er ekkert til sem heitir sólbrúnka, eða freknur.
Í næstu viku byrjar skólinn. Þá byrjar Danni líka í aðlögun hjá ofurpabba sem er dagforeldrið hans. Skemmtilegur náungi sem er búinn að vera dagpabbi í 11 ár og er alveg ofur eðlilegur. Svona þessi týpiski náungi sem spilar fótbolta við krakkana sína og bakar brauð á meðan börnin sofa á daginn (ok það er kannski ekki hluti af þessu eðlilega en hann gerir það samt). Fínn náungi og vonandi reynist hann Danna bara vel).
Meira síðar.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 73 færslur.
/ Álit
loxins..;)
Gott að fá góðar fréttir! Og takk fyrir spjallið á Skype um daginn ;)
Frábært að Danni fari til dag-pabba. Maður fær vonandi sjóðheitar fréttir beint í æð um hvernig það gengur :D
Gangi ykkur vel í skólanum.. og verið dugleg að blogga! Við kíkjum hingað inn á hverjum einasta degi, oft á dag!



RSS veita