í skólanum...

Fyrsti skóladagurinn var í dag, svona ef ég dreg frá einn kynningardag í síðustu viku. Þetta leggst svona ágætlega í mig, getur örugglega orðið mjög skemmtilegt en ég er mest smeyk við að þetta verði of létt. Vissulega ræð ég svolítið þyngdinni sjálf, en margir kúrsar á þessarri önn eru byrjendakennsla grafískri hönnun eða í forritum eins og Photoshop og Dreamweaver sem ég er með BA gráðu í (ógeðslega klár stelpa). Hugsanlega get ég fengið eitthvað af því metið og eytt þá meiri tíma í forritun, markaðsfræði eða stærri verkefni, á eftir að tékka á því.
Bekkjarfélagarnir eru líka skrautlegir og skemmtilegir. Af hátt í 30 manns erum við 6 íslendingar sem er 5 of mikið.. um 15 menntaskólakrakkar frá Eistlandi/Lettlandi/Litháen, einn frá Suður Afríku, Bandaríkjunum, Ástralíu og Bretlandi, einn miðaldra karlmaður frá Írak og svo slatti af Dönum sem vildu læra á ensku. Það sem kemur örugglega til með að pirra mig (þið sjáið að ég er búin að ákveða það nú þegar) er að allt þetta fólk er með mismunandi bakgrunn og kannski flestir sem eru frekar tæknilega sinnaðir en útlitslega.
Þetta gæti orðið skítlétt og algjör tímasóun, eða þetta gæti líka orðið krefjandi verkefni - fer eiginlega allt eftir mér sjálfri.
Ég á eftir að fá mér pennaveski og liti en ég keypti mér samt ný skólaföt. Það er fyrir öllu.

Mánudagur 28. ágúst 2006 kl. 17:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 6

æji svona dót sem maður teiknar eftir...

Jonni félagi er kominn með verkin sín á flottri síðu Skapalónsins.

Sunnudagur 27. ágúst 2006 kl. 22:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / netið / 0

8381 Tilst

Hverfið sem við búum í er mjög indælt. Þetta er svolítið hringhverfi innst í botnlangagötu þar sem húsin snúa út að sameiginlegu túni. Við erum á efri hæð í fjögurra íbúða húsi en deilum stigagangi með öðrum fjórum íbúðum, við hliðina á okkur er íslenskt par með tvö börn en í öðrum íbúðum eru danir. Þetta eru sennilega allt leiguíbúðir sem húsaleigufélag á og rekur. Hérna eru nokkrar íslenskar fjölskyldur, ungt fólk í námi eða að klára nám og allir með börn á leikskólaaldri eða yngri, semsagt bara gaman að heyra í íslenskum krökkum hérna að leik úti á túni. Þetta fólk er allt algjörir gullmolar og allir alltaf tilbúnir að veita upplýsingar eða aðstoð, það er alveg magnað og kom mér svolítið á óvart hvað samheldnin er mikil hérna.
Íbúðin er alltaf að koma til. Það er skrýtið að vera allt í einu ekki með geymslu, nema útigeymslu og þar er ekkert hægt að geyma því þar myglar allt og fer í steik - nema bjórinn. Þess vegna erum við búin að kaupa ógrynni af frekar skrautlegum kössum og boxum til að hafa uppi á skáp til að setja ýmiskonar geymsludót í. Þegar það er farið af stofugólfinu er ekki alveg eins mikið drasl í íbúðinni.

Sunnudagur 27. ágúst 2006 kl. 21:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / 1

skal vi snakke sammen

Ég er orðin nokkuð köld á að nota dönskuna. Allavega erum við búin að sækja um heimasíma, netið og gsm á dönsku, opna bankareikning og fá slatta af Dankortum hingað heim ásamt því að geta loggað okkur inn í netbankann þannig að eitthvað erum við að segja rétt. Auk þess fara öll samskipti okkar við dagpabbann fram á dönsku en ég náði samt ekki alveg því sem var að gerast í dag hjá þeim, eitthvað í sambandi við apa og gíraffa. Ég vona að hann hafi ekki farið með þau til Afríku. Ha ha.
En við reynum samt að hafa útvarpið í gangi þegar við erum hérna heima og í bílnum. Danmarks radio 1 og 2 eru alltaf með einhverja spjallþætti "svona Spegil RÚV-sins" og það er mjög gefandi þegar maður fattar um hvað er verið að tala. Gefandi já.
Sjónvarpið er hins vegar ekki komið í hús ennþá en það er allavega búið að velja það. Við gerðum heiðarlega tilraun til að ná í það í Electric City um daginn en það var svo óhemju mikil upphæð að það þurfti að hringja handvirkt til Visa á Íslandi (gott að heimilisfaðirinn er vel að sér í heimildaleitarkerfum) þannig að við við söltuðum það aðeins og ætlum að nálgast það eftir helgi með Dankortinu okkar. Við eigum hvortsemer ekki sjónvarpsskáp undir það (en erum búin að fara nokkrar ferðir í mublubúðir og sennilega búin að finna það sem virkar best; heldur litlum puttum í hæfilegri fjarlægð)
og það liggur ekkert á að fjárfesta í sjónvarpsskáp af því það er ekkert sjónvarp komið ennþá.
Sniðugt.

Föstudagur 25. ágúst 2006 kl. 21:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / 2

shop-a-holic

Íbúðin okkar er nokkuð vel staðsett, svona verslunarleg séð. Fyrir það fyrsta er macdonalds úti á horni sem kom sér vel fyrstu dagana þegar hnífapörin voru ekki komin en er orðið svona frekar pirrandi að hafa gullbogana í útsýninu út um stofugluggan (svona svipað og snæland video var í kaplaskjólinu). Í 5 minútna akstursfjarlægð er svo Bilka (sama hjólafæri reyndar líka, tékkaði á því í fyrrakvöld) sem er mega stórt vöruhús þar sem ALLT er til, svona hagkaupsbúð x10. Í Bilka hverfinu er líka El-Giganten (sama og ELKO heima) og Electric City sem eru raftækjabúðir, Toys'R Us og BabySam ásamt Jysk (Rúmfatalagerinn). Og sjitt hvað við erum búin að versla mikið.
Ég á samt eftir að finna það sem er eitthvað mikið ódýrara hér en heima, mér finnst matvara vera bara á svipuðu verði, kannski fyrir utan kjöt og sælgæti. Bjórinn er vissulega töluvert ódýrari og það er ákveðin stemmning í því að kaupa kassa af Carlsberg í gleri á þúsundkall.

Mánudagur 21. ágúst 2006 kl. 21:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / 1

thunder -- a a a a a...

Þrumuguðinn Þór hefur verið duglegur að tjá sig undanfarna daga og einhver kerling kemur á eftir honum með garðkönnu og vökvar hressilega, þetta er orðið frekar pirrandi. Í gær lentum við í 2 mín rigningu þar sem mánaðarregn Akureyrarbæjar að magni, lenti á okkur þar sem við trilluðum innkaupakerrunni okkar frá ikea og út í bíl.
Núna erum við Danni á leið til Brian dagpabba þar sem hann þarf aðeins að venjast því umhverfi. Á morgun verður dagurinn tekinn snemma hjá dagpabba og mamman bregður sér kannski aðeins frá þá.

Mánudagur 21. ágúst 2006 kl. 13:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 4

á lífi

danni_denmark.jpg

Eftir laaangan tíma kom nettengingin loksins í gær. Það stóð reyndar ekki á þeim TDC mönnum, þeir voru snöggir, en maður þarf að vera kominn inn í kerfið með kennitölu og slíkt, áður en maður getur fengið á sig einhverja reikninga hérna. En sem betur fer er þetta allt að smella.
Við erum líka búin að koma okkur ágætlega fyrir en vantar ennþá sjónvarpið, nettengingin læknar aðeins sjónvarpsþorstann og við náðum recap á síðustu Supernova þætti (Magni er sko frændi hans Óla) og á meðan sambandsleysinu stóð yljaði Dr Grey og hennar sjúkrahússögur mér um hjartarætur. Ég á ennþá eftir nokkra þætti úr seríu 2 sem ég geymi fyrir vídeospólukvöldin.


En alveg týpískt með veðrið hérna. Fyrstu dagana var sól og blíða og steikjandi hiti eins og það er búið að vera síðan í apríl, það entist fyrstu þrjá dagana okkar hérna. Svo kom þrumuveður, eldingar og rigning.. 18cm jafnfallin úrkoma (ég skil reyndar ekki hvernig vatn getur verið öðruvísi en jafnfallið..) í ágúst, meira en hefur verið í allt sumar. Algjörlega týpískt, sumarið ekki byrjað á íslandi þegar við förum og búið í danmörku þegar við loksins komum. Á þessu heimili er ekkert til sem heitir sólbrúnka, eða freknur.


Í næstu viku byrjar skólinn. Þá byrjar Danni líka í aðlögun hjá ofurpabba sem er dagforeldrið hans. Skemmtilegur náungi sem er búinn að vera dagpabbi í 11 ár og er alveg ofur eðlilegur. Svona þessi týpiski náungi sem spilar fótbolta við krakkana sína og bakar brauð á meðan börnin sofa á daginn (ok það er kannski ekki hluti af þessu eðlilega en hann gerir það samt). Fínn náungi og vonandi reynist hann Danna bara vel).


Meira síðar.

Föstudagur 18. ágúst 2006 kl. 22:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 2

Tónleikar í bræðslunni

Tónleikarnir fyrir austan með Emiliönu Torrini og Belle and Sebastian voru stórkostlegir. Það var gaman að koma einusinni á borgarfjörð þetta sumar, þangað er alltaf gott að koma. Móðurfjölskyldan hans Óla á ættaróðal þarna á þessum fallega stað og við tjölduðum tjaldkerrunni í hlaðinu. Ekki var verra að Emiliana og hennar band dvaldi í götunni og Belle and Sebastian í næsta húsi við. Við vorum mætt snemma í bræðsluna, samt ekki alveg fyrst en frænkur hans Óla voru búnar að "panta" besta stað í húsinu þannig að við tróðum okkur með þeim. Þvílíkir tónleikar. Úff vá þetta var svo flott.
Við rukum af stað á sunnudag. Við ætluðum að kíkja upp að Kárahnjúkum en það var svo lágskýjað (les. þoka) að við ákváðum að fara frekar beint norður. Það er samt ekki þannig að maður geti bara "kíkt seinna" á þetta svæði. En við eigum leið hjá á morgun þannig að ef við verðum á góðum tíma þá náum við vonandi að kíkja þarna uppeftir.

Þriðjudagur 01. ágúst 2006 kl. 16:04 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 3