pakkipakk

Flutningarnir eru komnir núna á háalvarlegt stig. Stráksi var sendur með flugi norður í morgun með ömmu sinni og meiri söknuður virtist vera hjá foreldrum hans en honum sjálfum. Nýjustu fréttir herma að sá stutti uni sér einstaklega vel hjá afa og ömmu, með stóran garð útaf fyrir sig, með rennibraut og hundi.. hvað meira biður maður um?

Við Óli erum á góðri leið með að koma öllu sundur og ofan í kassa og munum senda allt í gám, vonandi á morgun. Þá munu verða endurfundir við stráksa í norðansælunni.. mmmm, gerir allt þetta rykuga pökkunarstress þess virði.


Sunnudagur 16. júlí 2006 kl. 18:11
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / heimilið. Þar eru 66 færslur.

/ Álit

Eygló:

Hæ,hæ...

Ertu búin að selja hillurnar og skrifborðið??

Sonur minn yngsti sem er nýfluttur til Rvk. gæti ef til vill notað slíkt.

16.07.06 19:52


dagný:

hæ, já, því miður.. það er bara allt farið.. :)

17.07.06 17:02