Ef ég ætti bílskúr...
..þá væri búin að vera rífandi stemmning í bílskúrnum í morgun. Ég setti upp smá sölusíðu með dótinu sem við þurfum að losna við fyrir lítið og svörin hafa ekki staðið á sér. Borðið og stólarnir okkar eru seldir og sennilega skiptiborðið líka. Svo er ég sennilega búin að gefa svalavagninn hennar mömmu líka, vonandi að hann komi áfram að góðum notum.
Enn eru eftir: Ísskápur, hljómflutningstæki (reyndar svolítið sárt að selja þau, mamma ætlar að taka þau ef þau komast ekki á annan góðan stað), Hillusamstæða, Rúm, Teikniborð, Hilla, Hornskrifborð, Skrifborðsstólar.
GRÍPIÐ GÆSINA MEÐAN HÚN GEFST =)
Fimmtudagur 06. júlí 2006 kl. 15:29
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur.
/ Álit
Hahaha! Þvílíkur brandari.. Mamma tekur það sem ekki selst! Snilld ;) híhíhí
Ásvegur 3 er svo sannarlega besti staður í heimi! :D

