Mynd

Belle and Sebastian á tónleikum á Borgarfirði Eystra
Powered by Hexia

Laugardagur 29. júlí 2006 kl. 22:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 0

afslöppuð í meira lagi

Að baki: búslóðin í gámi og tóm íbúð í borg óttans. Norðurferð og brúðkaup á Húsavík, afslöppun.
Framundan: Tónleikar með Belle & Sebastian á Borgarfirði Eystra og svo snekkjusigling yfir Atlantshafið til fyrirheitna landsins.... eða svona þannig.

Annars hef ég ekki haft mikla þörf fyrir að tjá mig. Lítið tekið af myndum líka sem er frekar leiðinlegt svona eftirá. Ég er samt að missa mig með gömlu filmuvélina hans Óla (Canon EOS 500n) sem er með frekar flottum linsum. Mig langar geðveikt til að versla mér stafrænt body svo maður geti notað þessar linsur. Það myndi telja fljótt í framkölluninni. Það bíða hér fjórar filmur eftir framköllun og ótrúlega erfitt að gera sér grein fyrir því að geta ekki skoðað myndirnar sem ég tók í góða veðrinu í dag.

Í þessum töluðu orðum er Hanna systir sennilega að lenda á Hawaii, frekar langt í burtu en öfundsýkin nær alveg alla leið og vel það.

Miðvikudagur 26. júlí 2006 kl. 23:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / lífið sjálft / 0

pakkipakk

Flutningarnir eru komnir núna á háalvarlegt stig. Stráksi var sendur með flugi norður í morgun með ömmu sinni og meiri söknuður virtist vera hjá foreldrum hans en honum sjálfum. Nýjustu fréttir herma að sá stutti uni sér einstaklega vel hjá afa og ömmu, með stóran garð útaf fyrir sig, með rennibraut og hundi.. hvað meira biður maður um?

Við Óli erum á góðri leið með að koma öllu sundur og ofan í kassa og munum senda allt í gám, vonandi á morgun. Þá munu verða endurfundir við stráksa í norðansælunni.. mmmm, gerir allt þetta rykuga pökkunarstress þess virði.

Sunnudagur 16. júlí 2006 kl. 18:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / 2

á förnum vegi...

Ömurlegt sumarveður úti þessa stundina, komin með uppí kok af því að raða í kassa svo að eina vitið er að henda sér aðeins á netið:
Hef rekist á nokkra hluti síðustu daga.
- Emigre eru komin með nýjan vef, alltaf smart.
- Skalli Zidane er innblástur ýmissa rugludalla þessa dagana.. spurning hvort skallinn verði nýja hreyfingin í FIFA 2007
- Þó hún sé á undarlegu tungumáli þá er My Desk City alveg ágætur staður til að ná í myndir á desktopið, nú ef þú vilt eitthvað meira designy þá er hægt að finna ýmislegt á thefwa.com
- FlashTV .. úff*
- Áhugavert og skemmtilegt blog layout: bearskinrug

Þriðjudagur 11. júlí 2006 kl. 14:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 0

the power of babyland!

aldrei skal ég vanmeta markaðstorgið á barnalandi, þar er gjörsamlega hægt að selja allt.. á einum og hálfum degi skoðuðu um 200 manns sölusíðuna og flest allt er búið að seljast, enda stórsér á íbúðinni minni!

núna fara þessir flutningar að verða raunverulegir.... *glúbb*

Föstudagur 07. júlí 2006 kl. 16:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 1

Ef ég ætti bílskúr...

..þá væri búin að vera rífandi stemmning í bílskúrnum í morgun. Ég setti upp smá sölusíðu með dótinu sem við þurfum að losna við fyrir lítið og svörin hafa ekki staðið á sér. Borðið og stólarnir okkar eru seldir og sennilega skiptiborðið líka. Svo er ég sennilega búin að gefa svalavagninn hennar mömmu líka, vonandi að hann komi áfram að góðum notum.
Enn eru eftir: Ísskápur, hljómflutningstæki (reyndar svolítið sárt að selja þau, mamma ætlar að taka þau ef þau komast ekki á annan góðan stað), Hillusamstæða, Rúm, Teikniborð, Hilla, Hornskrifborð, Skrifborðsstólar.

GRÍPIÐ GÆSINA MEÐAN HÚN GEFST =)

Fimmtudagur 06. júlí 2006 kl. 15:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 1

drasl + afmæli + mp3

Ég er ennþá að slást við draslið mitt, ég er ótrúlegur draslasafnari! Á meðan Danni svaf í dag náði ég að tækla nokkra safnkassa sem fóru nokkurn veginn beina leið í ruslapoka. Ég náði samt að "bjarga" nokkrum jólauppskriftum sem ég reif úr síðasta jólablaði moggans, nokkrum límmiðum með apple merkinu, gjafaborðum sem hægt er að nota í föndrið, geisladisk með Office Space, BA ritgerðinni minni og einhverjum möppum úr skólanum. Annað fór í ruslið og ég man ekki alveg hvað það var.. sem þýðir að það getur ekki skipt neinu máli.


Familían rölti niður í bæ í gær, þar hélt Landsbankinn uppá afmælið sitt með frekar áberandi hætti. Við sníktum kökusneið þrátt fyrir að ætla okkur aldrei í kúnnahópinn. Kakan var ágæt, svolítið Betty-bragð af henni en bara allt í lagi, þeir fá mikið hrós fyrir að bera fram mjólk með henni.
Stemmningin í miðbænum var samt skrýtin. Mér leið eins og allt eðlilegt fólk væri einhversstaðar á ferðalagi úti á landi og þetta væri fólkið sem gæti ekki farið eða nennti aldrei að fara neitt út úr bænum.
Þannig að við hálf fukum heim fljótlega og náðum vonandi að brenna eins og 1/6 af kökunni á leiðini.


Stafrænn spilastokkur? Nýyrðasmíðin alveg að blómstra á mbl.is? Æji ég veit ekki, er eitthvað auðveldara að segja stafrænn spilastokkur en mp3-spilari? Held að þetta hitti ekki í mark. Glymskratti er mun skárra ef það þarf endilega að finna eitthvað annað orð.

Sunnudagur 02. júlí 2006 kl. 22:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 4