viðskiptahugmynd 1
Einhverntíman í síðustu viku var ég stopp á rauðu ljósi og sá bíl sem var augljóslega að flytja stóra dunka af vatni, svona áfyllingu á vatnsstandarnir frá Selecta og er á öðrum hverjum vinnustað og opinberu rými. Ég hugsaði til þess að þegar við verðum komin til Danmerkur myndi ég örugglega gefa mikið fyrir að fá svona sendingu af fersku íslensku vatni, þar sem kranavatnið var svolítið eins og sundlaugarvatn síðast þegar ég var þar.
En Íslendingum hefur gengið ótrúlega brösuglega að flytja út vatn, eins og það virðist vera borðliggjandi útflutningsvara.
Svo fór ég að spá, hefur eitthvað fyrirtæki byrjað á þessum enda, að selja vatn í stórum dunkum í drykkjarstanda? Alveg er ég viss um að útibú stóru íslensku fyrirtækjanna sem eru að dreifa úr sér út um allan heim, munu glöð taka það vatn framyfir annað. Og um leið og starfsfólkið er komið "á bragðið" mun það versla það sama úti í búð í tveggja lítra flöskunum sínum.
Ég bara trúi því ekki að allir hafi verið að vesenast í að selja hálfan lítra hér og þar... þetta hlýtur að hafa verið gert!
Eða kannski liggur beinast við að selja íslenskt vatn í áldósum?
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.
/ Álit
Ég veit ekki með þetta vatn, ég hef smakkað það í spron og það var ódrekkandi. Er ekki jón ólafs eitthvað að brasa í þessu?

