sumarið og tónleikar

Tíminn flýgur áfram bókstaflega. Ég á þrjár vikur eftir í vinnunni og svo förum við Danni í svolítið sumarfrí og notum tímann til að pakka niður. Reyndar erum við á leið norður um næstu helgi í útskriftina hennar Hönnu systur og ætlum að taka eins mikið af dóti með okkur þá og við getum. Það þýðir að við þurfum að pakka eins og mofo núna í vikunni.

Við nældum okkur í tónleikamiða fyrir helgi á tónleikana með Belle and Sebastian og Emiliönu Torrini sem verða á Borgarfirði Eystri í lok júlí. Við verðum á norðurlandi um þetta leyti en það hittir reyndar þannig á að tónleikarnir eru á laugardeginum 29. júlí en brottför með norrænu frá Seyðisfirði er á fimmtudeginum þar á eftir... við stefnum á að "skutlast bara" austur á tónleikana og skilja Danna eftir, og vera svo nokkra daga fyrir norðan áður en við förum aftur austur... *úff* nokkuð löng bílseta. En alveg örugglega þess virði.


Sunnudagur 11. júní 2006 kl. 20:55
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / ýmislegt. Þar eru 105 færslur.