hætt farin búið bless
Það var mjög tregablandin stund þegar ég tæmdi verkefnamöppuna mína í vinnunni og skilaði lyklinum mínum. Mér finnst ég eiga svolítið í þessu fyrirtæki enda búin að vinna þarna síðan haustið 2003, með hléum þó. Það er langur tími á lítilli auglýsingastofu. En það eru spennandi verkefnin sem taka við.
Til að byrja með ætlum við Danni að vera í sumarfríi í nokkra daga hérna heima, en hann hætti hjá dagmömmunni í dag líka. Við ætlum að kíkja saman í Nauthólsvík með fötu og skóflu, á róló auðvitað og sitthvað fleira skemmtilegt. Við ætlum eitthvað að reyna að pakka meira niður, en það sem er eftir er aðallega það sem við ætlum að taka með og erum að nota dag frá degi, þannig að það er voðalega erfitt að setja það niður í kassa. Eftir fyrstu vikuna fer það samt að bresta á, því við ætlum okkur að vera búin að flytja dót niður í gám þann 18. júlí. Á meðan á mesta hamaganginum stendur mun Danni fara norður til mömmu og pabba í nokkra daga og svo komum við til hans þegar allt brasið er búið í borginni.
En fyrst, sumarfrí.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / heimilið. Þar eru 66 færslur. / uppeldi. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
Mhh.. sumarfrí! Reyndu nú samt sem áður að njóta þess að vera í fríi þó þú þurfir að pakkka! Það er svo gaman að breyta til! ;)
Gangi þér/ykkur vel!
baddy systir:
ohh mig langar að vera í sumarfrí, fékk reyndar 3 vikna frí í byrjun sumars (ítalíuferðin) en ég vil meira!! en hvenær dags er það sem þið mæðgin farið út í leik/nauthólsvíkina? bara svona ef mér gæfist tími til að skreppa með ykkur!! er að fara á morgunvaktartörn núna næstu daga....

